föstudagur, 21. desember 2007

Jólakveðja

Sæl kæru vinir

Við viljum óska ykkur gleðilegra jóla og farsælts komandi nýtt ár.

Það er allt gott að frétta af okkur, erum öll kominn í jólafrí og njótum þess að vera saman og undirbúa jólin þó ekki sé nú mikið stressið á okkur enda vorum við búinn að kaupa allar jólagjafir úti áður en við komum. Keyptum jólatré í gær (svolítið mikið dýrara en í danmörkinni) en jólakortin hafa eitthvað gleymst og erum við hjónin sein í ár, elsku fólk í útlöndum þið fáið nýárskveðjur frá okkur, er ekki bara gaman að fá kort svona á milli jóla og nýárs?? Takk fyrir allar yndislegu heimsóknirnar og knúsin sem við höfum fengið síðastliðinn mánuð.

Hafið það gott og njótið jólahátíðarinnar.

laugardagur, 17. nóvember 2007

Erum komin uppá skaga, ferðin heim gekk vel fyrir utan að Elvira varð veik og er enn. Stúlkan ætlar að rífa það úr sér núna um helgina svo hún komist í aðlögun á Skátaselið á mánudaginn. Krakkarnir búnir með fyrsta daginn í skólanum og gekk vel. Heimþráin er samt mikil hjá þeirri stóru. Nú bíðum við bara eftir gámnum og íbúðinni. Fullorðna fólkið byrjar að vinna á næstu dögum. Erum sæl og ánægð á íslandinu, yndislegt að hitta fjölskyldu og vini þó veðrið sé ömurlegt í dag...þvílíkur kuldi.

Bið að heilsa öllum í Danmörkinni.

laugardagur, 3. nóvember 2007

Kveðja

Þetta verður mín síðasta bloggfærsla héðan úr Danmörkinni, efast reyndar um að ég eigi eftir að blogga eftir að ég flyt. Þetta blogg hefur aðallega verið gert fyrir ættingja og vini á meðan við höfum dvalið í baunalandinu.

Takk fyrir að fylgjast með og skrifa komment.

Þið sem búið á Íslandi þá verður voða gaman að hitta ykkur, eigum flug þann 13. nóvember og þið sem eigið heima í Danmörkinni-----ég á eftir að sakna ykkar!!!!

miðvikudagur, 31. október 2007

Ég var hreinlega búinn að gleyma því hvað mér finnst leiðinlegt að pakka, er á fullu að pakka núna og finnst mér þetta taka ótrúlega langan tíma og vá ég sem hélt við ættum ekkert dót. Þvottavélin ákvað líka að gefast upp á okkur þannig að við þurftum að fjárfesta í nýrri vél sem er ekki kominn í hús, það tekur því nú varla að tengja hana áður en við förum en þá er nú gott að eiga góða granna að og systir sem hægt er að níðast á. Týpískt samt fyrir okkur að lenda í þessu svona rétt fyrir flutninga

Allt er að smella saman hjá okkur og eru 2 vikur í okkur á Íslandið, kvíði svolítið fyrir veðrinu sem er heima núna, svolítill munur á veðurfari hér og á Íslandi. Nú njótum við síðustu dagana hér í Aarhus og löbbum um bæinn og skoðum staði sem við eigum eftir að sakna. Fórum í dag í sund og nutum þess að busla í heitri innilauginni.

Helgin hljómar uppá pökkun auðvitað og jólahlaðborði með vinum okkar hér úti, hlakka mikið til. Krakkarnir fara í pössun til Sylvíu systir og gista þar, þetta verður fyrsta næsturgistingin hennar Elviru Öglu síðan hún fæddist.

miðvikudagur, 24. október 2007

Tölvuveiki

Hvað er eiginlega í gangi með mig? á mánudagsmorgninum leið yfir mig þegar ég var á bloggrúnti á netinu, náði að öskra á Gunna til að láta hann vita, rétt náði að kasta tölvunni frá mér áður en ég lognaðist út af og á þriðjudagskvöldið sat ég í sófanum með tölvuna í fanginu og þá heyrist eitthvað klikk í vinstra hnénu og er ég nú haltrandi og læknarnir skilja ekkert hvað er að mér, er núna á sterkjum verkjatöflum við sársaukanum í hnénu.......kannski er ég bara með einhvern tölvusjúkdóm heheheh, nei annars er ég öll að koma til finnst bara frekar fyndið að það skuli líða yfir mig og fá svona næsta dag eitthvað í hnéð og geta næstum ekki gengið...ég held bara að ég láti tölvuna í friði hef ekki tíma í svona vesen.

Annars fengum við fullt af góðum fréttum í gær..............ohhh þetta er allt saman svo spennandi!!

þriðjudagur, 23. október 2007

Við hjónin fórum í smá leiðangur í gær, okkur vantar ýmsa hluti áður en við förum heim sem við tímum ekki að kaupa helmingi dýrari þegar við komum.
Ég á eftir að sakna ótrúlega margs hér frá Danmörkinni, okkur er búið að líða vel hér og höfum gert margt sem við hefðum aldrei annars gert, það er eiginlega hægt að segja að þetta sé búið að vera eitt stórt ævintýri sem aldrei mun gleymast. Ég á eftir að sakna veðursins og grænu náttúrunnar, bambagarðsins, matsins....ekki má gleyma vinum okkar hér sem ég mun sakna óendanlega mikið, maður er eiginlega hættur að segja að þeir séu vinir manns þeir eru frekar vinir og fjölskylda okkar.......ohh það er bara svo margt sem ég á eftir að sakna en við horfum björt framávið og hlökkum til að takast á við ný verkefni á Íslandi.

föstudagur, 19. október 2007

Er ekki kominn timi a sma faerslu...erum buinn at vera tolvulaus i 3 vikur og erum nuna med lanstolvu og okkar i vidgerd og lyklabordid a donsku og eg kann ekkert at breyta tvi.

Af okkur at fretta er at vid erum at fullu at pakka og akveda timasetningu a heimfor okkar, erum med fjolskylduna mina i heimsokn og mikid stud og gaman. Vid erum ekki enn buinn at finna okkur husnaedi svo ef tid vitid um eitthvad latid okkur endilega vita.

Sidasti vinnudagurinn minn var i dag og er eg hoppandi kat, hlokkum mikid til at flytja.

fimmtudagur, 11. október 2007

Auglýsing

Okkur vantar íbúð fyrir 5 manna fjölskyldu á Akranesi frá 1. desember. Endilega látið okkur vita ef þið vitið um einhverja íbúð á netfangið christel_gunni@hotmail.com eða hringið í okkur í íslenska símanúmerið 496-0143.

fimmtudagur, 4. október 2007

Elvira Agla 2. ára í dag

2ja vikna


Snúlla okkar er 2. ára í dag. Hún vaknaði í morgun kát og hress og vildi drífa sig í vuggestuen með bollurnar sem við bökuðum í gær og sá hún um að skreyta þær, setja glassúr og skraut ofaná og svo rúsínupakka handa krökkunum. Systkini hennar sungu afmælissönginn og fékk hún gjafir í morgun frá þeim. Seinna í dag koma vinir hennar í afmæli....rosa gaman og mikið stuð.


Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir tveimur árum síðan fæddist snúlla okkar, maður rifjar upp þennan dag og hlógum við hjónin í morgun þegar við rifjuðum upp fæðingarferlið, hefur einhver verið settur í gang fjórum sinnum? það hef ég prófað og ekkert gekk fyrr en ég var sett í gang í fimmta skiptið......þetta er bara fyndið svona eftirá.


Njótið dagsins í dag!!

fimmtudagur, 27. september 2007

Stórfréttir

Kæru lesendur nú er okkar danska tímabil að líða undir lok, við fjölskyldan höfum tekið ákvörðun að flytja á landið kalda fyrir jól......

Okkur hlakkar mikið til og erum spennt......erum á fullu í undirbúning, langar að minna ykkur á ef þið viljið heyra í okkur að þá er íslenska símanúmerið 496-0143 (okkur finnst alltaf gaman að láta hringja í okkur).

þriðjudagur, 25. september 2007

Mikið að gerast hjá okkur núna...............

fimmtudagur, 20. september 2007

Góða helgi

Ég hef ótrúlega gaman að því að sjá börnin mín þroskast og breytast, tíminn líður ótrúlega hratt, ég reyni að hafa það bakvið eyrun að ég sé einungis með þessa einstaklinga í láni og ætla því að gera eins vel og ég get til að koma þeim áfram í lífinu. Ég vil að þau eigi góðar minningar af okkur sem foreldrum og eigi góðar minningar af samveru okkar saman. Við sjáum helst í gegnum dætur okkar að tíminn líður hratt, sú elsta orðinn unglingur og er að mikið að breytast og mikið að gerast hjá henni og sú stutta stækkar og stækkar og lærir meira og meira. Hervar minn stækkar auðvitað líka eins og systur sínar en á þeim aldri sem hann er á þá sér maður kannski ekki eins miklar breytingar.....

Í morgun var mikið fjör og mikið gaman hjá þeim systkinum og segir sú stutta ,,Hevvar etti kyssa Evvirru,, sú stutta vill auðvitað ráða yfir bróðir sínum og hún reynir eins og hún getur og yfirleitt gefur hann eftir, hann er ótrúlega góður við systir sína og er alltaf að knúsa hana og kyssa og í morgun var hún greinilega eitthvað orðinn leið á þessu kjassi, þegar hún sagði þetta þá horðum við hjónakornin á hvort annað og hugsuðum hún er að verða stór stúlkan enda 2 ára afmæli í næsta mánuði.

Eigið góða helgi öll saman, við ætlum að hugga okkur hér heima og vonumst til að sólin láti sjá sig svo við getum tekið garðinn í gegn og já háaloftið það bíður okkar líka nú á að rífa allt niður og raða og flokka og henda (það erum við ótrúlega léleg í).

mánudagur, 17. september 2007

Mikið er rætt í vinnunni að verðið sé að hækka í matvöruverslunum, mjólk og brauð hefur hækkað en við kókdrykkjufólkið erum búinn að taka eftir því að blessað kókið það lækkar.... Við finnum samt mun á því að það er dýrara að versla inn í matinn núna en fyrir 3 árum þegar við fluttum hingað en við vorum reyndar fjögur þá en fimm núna á heimili. Verðið á matvöru er samt mun lægra hér en heima en samt ekki allt (allaveganna er það þannig í minningunni, hvað segið þið um það þið sem búið á Íslandi?).

Nú er tími útgjalda, þá meina ég tími útifatnaðaútgjalda, tveimur yngstu meðlimunum vantar galla, úlpu, skó vantar á alla krakkana og svona mætti lengi telja.....mikið er nú gott að búa þá í Danmörkinni þar sem hægt er að kaupa allan þennan fatnað á góðum prís. Ef ykkur vantar að láta kaupa fyrir ykkur föt á góðu verði þá skulið þið ekki hika við að hringja kæru vinir og fjölskylda. Ég er nú nokkuð viss um að fatnaður sé ódýrari hér en heima er það ekki?

fimmtudagur, 13. september 2007

Var að detta inn úr dyrunum nýkominn heim úr vinnunni. Húsið er tómt, er búinn að skella í eina þvottavél. Veðrið úti er yndislegt, sólin skín og það er hlýtt. Annars er farið að kólna svolítið hjá okkur og orðið kalt í húsinu á kvöldin þá er um að gera að kveikja á kertum og hafa kósý.

Snúllan mín litla er orðinn svo dugleg að tala og það eru ný og ný orð sem bætast við á hverjum degi og farinn að segja heilu setningarnar. Um helgina verður koppaþjálfun, er ekki viss um að henni finnist það sniðugt það er svo þægilegt að hafa bleyju... Stúlkan á 2. ára afmæli í næsta mánuði, tíminn er svo fljótur að líða, eiginlega bara allt of fljótur og maður sér að hún er svo mikið að stækka og þroskast, ég hef ótrúlega gaman að henni því hún er svo ákveðinn og vill fara sínar leiðir.

Hervar er alltaf spenntur fyrir fimmtudögunum og vill helst koma heim strax eftir skóla því í dag eru skátarnir. Ég er að spá í að búa til aukalykil handa honum að húsinu og þá getur hann komið heim úr skólanum þegar hann vill, hann er nú 8 ára. Ég fór einmitt að spá í því í gærkvöldi þegar hann talaði um það að honum langaði að fá sinn eigin lykil að ef við byggjum á Íslandi þá væri hann ábyggilega löngu kominn með lykil um hálsinn maður verður að passa sig að vernda ekki börnin of mikið.

Það er alltaf nóg að gera hjá Margréti, hún er í gítarkennslu og svo er hún í tveimur hollum í dansi og leikfimi, henni finnst gaman að hafa nóg að gera. Það var svo gaman að henni í gær þegar hún var að læra fyrir fermingarfræðsluna, þá sagði hún ,,ekki vissi ég að maður þyrfti að læra svona mikið og vita svona mikið um Guð og jesú áður en maður fermist,, Úffff hvað lífið getur stundum verið erfitt!!

Svona er lífið í Bögehaven 8

mánudagur, 10. september 2007

Í dag á litla systir mín afmæli, elsku Sylvía innilegar hamingjuóskir með daginn í dag. Við fengum þessar fínu kökur hjá henni í gær og enduðum daginn á að fara í bíó við mæðgur og afmælisbarnið. Fórum á myndina Knocked up, ægilega skemmtileg konu mynd.

Annars er yngsta dóttirinn með einhvern leiðinda hósta sem hrjáir hana töluvert á nóttunni, þannig að nú kúrir hún á milli foreldra sinna sem finnst það ekki leiðinlegt þar sem hún hefur alltaf viljað sofa í sínu rúmi.

Fermingarundirbúningurinn hjá Margréti Sögu er farin á fullt skrið, hún er búinn að fá danska bíblíu og heimaverkefni fyrir næsta tíma. Henni finnst þetta ótrúlega spennandi og hlakkar mikið til. Nú er komið að okkur foreldrunum að fara að hefja undirbúning fyrir stóra daginn.

föstudagur, 7. september 2007

mánudagur, 3. september 2007

Margrét Saga er byrjuð í gítarkennslu, nú spilar hún með pabba sínum og æfir sig þannig. Hún er líka að æfa dans, stúlkan er að verða ansi stór og við horfum á hana stækka og verða að fullorðinni manneskju. Þetta er ótrúlega furðuleg tilfinning að sjá barnið sitt verða að fullorðnum einstaklingi.

Oft kem ég drekkhlaðinn heim úr vinnunni með töskuna fulla af súkkulaði, gamla fólkið er yfirleitt yndislegt og finnst gaman að gefa mér gjafir (þó ég hafi nú ekki gott af öllu þessu súkkulaðiáti), fékk meira að segja hálsmen frá manni um daginn og var það hjartalaga með steinum í. Verst hvað mér finnst þessi vinna ekki vera fyrir mig. Sumir dagar eru góðir en aðrir eru mjög slæmir og ég er við það að gefast upp á þessu, ég dái fólk sem getur unnið við þetta en þetta er eitthvað sem verður ekki mitt framtíðarstarf en ég á eftir að sakna gamla fólksins.

þriðjudagur, 28. ágúst 2007

Árgangsmót

Það er árgangsmót á laugardaginn hjá árgangi 1976, ohhh mig langar svo ógeðslega mikið. Ég ætla að vera með ykkur í anda kæru jafnaldrar á Akranesi og fá mér einn bjór niðrí bæ á festugen um helgina.

Góða skemmtun (það er sko pottþétt að ég mæti eftir 5 ár)

föstudagur, 24. ágúst 2007

Hervari hlakkar mikið til að hitta afa sinn þegar hann mætir hingað á svæðið í október, nú er farið að telja niður. Stundum er svolítið erfitt að vera langt í burtu frá þeim sem manni þykir vænt um.

Góða helgi.

miðvikudagur, 22. ágúst 2007

Skáti

Sonurinn ákvað að honum langaði að verða skáti, móðirinn bauð honum eitthvað annað, langar þig í íþróttir eða tónlistarskóla spurði hún, nei svaraði sonurinn mig langar bara í skátana. Auðvitað máttu það svaraði móðirinn og fór með drenginn í dag í skátana, sonurinn kom heim stútfullur af fróðleik um Guð. Hervar er í skýjunum eftir fyrsta daginn og bíður spenntur að eigin sögn eftir að læra meira um Guð og annað skemmtilegt eins og hann sagði sjálfur. Ég vona bara að hann læri ekki að syngja þarna því það var maður sem stjórnaði söngnum og söng hann hrikalega falskt að það var pínlegt að hlusta á það (foreldrarnir sem voru þarna litu bara á hvort annað og áttu erfitt með að halda hlátrinum inni í sér) Það er alltaf stuð í skátunum!!!


Elsku Rakel Katrín frænka mín er 2. ára í dag og óskum við fjölskyldan henni til hamingju með afmælið.

miðvikudagur, 15. ágúst 2007

Í dag er stór dagur hér í Danmörku. Í dag er bannað að reykja inn á skemmtistöðum og veitingastöðum, mikið er ég ánægð, ég hlakka til að setjast niður á kaffihús án þess að fá reyk á mig. Ég man þegar ég var með Elviru pinkulitla niðrí bæ og settist niður og ætlaði að gefa henni og fá mér eitthvað að borða í leiðinni var oft erfitt að finna sæti þar sem maður gat verið laus við reyk það fer líka alltaf svolítið í taugarnar á mér þegar ég fer út að borða og fæ reyk yfir mig frá næsta borði á meðan ég borða......þetta er gleðidagur fyrir okkur sem reykja ekki. Það voru mótmæli í miðbænum í dag þar sem samankomnir voru reykingamenn og konur til að mótmæla þessu banni.

Annars byrjuðu krakkarnir í skólanum í dag, Hervar í 2.b og Margrét í 7.a. Mikil spenna var í gangi fyrir deginum en þeim líst vel á og voru hress og kát þegar þau komu heim.

Diskóþema hjá gámafélaginu á föstudaginn, ég fór og keypti mér geggjaða gullskó (hrikalega hallærislegir) í gær fyrir 49 krónur!! núna erum við hjónakornin á fullu að finna búninga á okkur.......eruð þið með hugmyndir???

sunnudagur, 12. ágúst 2007

Kim Larsen tónleikar í gær

Við hjónakornin skelltum okkur í gær á tónleika hjá meistara Kim Larsen. Geggjaðir tónleikar og frábært stuð og ekki skemmdi fyrir að bassaleikarinn var algjört súkkulaði og vá hvað munnurinn á Kim Larsen er hrikalega stór og tungan líka þetta er ótrúlegt ég vissi það áður að hann væri með stóran munn en vá kannski ekki alveg svona. Þetta eru með bestu tónleikum sem ég hef farið á, skemmtilegt að vera á svona útitónleikum í geggjuðu veðri.

Börnin voru í pössun á meðan hjá Sylvíu systir alveg eins og í gamla daga þegar hún var lítil stelpa þá var maður alltaf að hringja í hana og biðja hana um að passa Margréti og núna 10 árum seinna er hún enn að passa barnaskarann minn, takk Sylvía mín.

Farið var í sommerlandsferð í dag og var mikið gaman og mikið stuð, litla hjartað hún Margrét okkar fór í öll tækin, það er ótrúlegt í hennar tilfelli.......

föstudagur, 3. ágúst 2007

Vinnuvikunni er lokið og er ég búinn að skrifa undir samning í vinnunni. Samningurinn hljómar samt þannig að ég get rift honum hvenær sem ég vil og þarf ekki að vinna upp uppsagnarfrestinn ef ég finn einhverja aðra vinnu sem mér finnst vera meira spennandi. Er á fullu að sækja um kennarastöður og vonast til að fá jákvæð svör. Mér líkar samt ágætlega þessi vinna sem ég er í og finnst mér virkilega gaman að hitta margt af þessu gamla fólki, verra er að launin eru ömurleg þetta er nánast eins og maður sé í sjálfboðavinnu. Kosturinn er þó að ég get hjólað í vinnuna og er ekkert háð bíl og er á fullu við að snakke dansk.

Gunni og Margrét keyrðu á vesturströndina í dag með Agli og börnum til að fara á tónleika, ætla að gista hjá Tedda og fjölskyldu og síðan koma þau öll hingað á morgun. Helgin hljómar upp á afmælisveislu og ferð í sommerland, gaman gaman.......

Góða helgi og farið varlega um verslunarmannahelgina.

laugardagur, 28. júlí 2007

Hervar er 8 ára í dag


Hervar á afmæli í dag, hann er 8 ára gamall. Það er ótrúlegt að það séu kominn 8 ár síðan að strákurinn minn kom í heiminn. Hervar er afskaplega ljúfur og yndislegur drengur. Hann er hefur óskaplega stórt hjarta, hann er orkudrengur og þarf mikið af hreyfingu og finnst gaman að hlutum sem krefjast mikillar orku enda er hann strákur. Hann elskar að vera í hesthúsinu með afa sínum og vildi helst geta verið þar upp á hvern einasta dag. Hann er nýbúinn að vera á Íslandi að leika sér með ömmu og afa og átti hann yndislegar stundir með þeim og öðrum fjölskyldumeðlimum og var þvílíkt dekraður. Hann hefur gaman að því að skoða dýrabækur og veit margt um hinar og þessar slöngur og kongulær. Hann er algjört gull, gullið mitt!!


Við héldum upp á afmælið hans á fimmtudaginn og bauð hann krökkunum í hverfinu og svo var ekki leiðinlegt að hafa alla íslensku gestina hér hjá okkur. Núna er amma farin frá okkur og eigum við mikið eftir að sakna knúsana frá henni. Teddi og Kristrún og krakkarnir eru hérna hjá okkur og er rosa stuð hjá okkur, erum á leið í sumarhús í dag, mikið fjör og mikið gaman....


Góða helgi.

laugardagur, 14. júlí 2007

Í fyrsta skipti í gær í langan tíma gátum við setið úti fram eftir kvöldi og spjallað og huggað okkur. Það er yndislegt, nú legg ég til að sólin láti sjá sig og vermi okkar kropp hér í Danmörkinni.

Góða helgi!!

miðvikudagur, 11. júlí 2007

Helv...... rigning alla daga hér í Danmörkinni, ég er alveg við það að gefast upp á þessu en sem betur fer er spáin fyrir næstu viku góð, þannig að á sunnudaginn ætlum við fjölskyldan að skreppa í sommerland. Við hjónkornin erum búinn að vera saman í sumarfríi þessa viku og erum búinn að þrá sól og strönd. Ég fer síðan að vinna á fullu aftur í næstu viku.

Hervar minn og mamma koma á þriðjudaginn með góða veðrið með sér í ferðatöskunni. Ohhhh ég hlakka svo til.

Erum búinn að kaupa okkur miða á Kim Larsen og Kjukken 11. ágúst hér í Aarhus, það eru enn til miðar ef einhver hefur áhuga (mamma lengir þú ekki bara ferðina eða kemur aftur???)

Annars er allt gott að frétta héðan og allir í stuði.

fimmtudagur, 5. júlí 2007


Hún mútta mín á afmæli í dag, knús og kram frá okkur í Lystrup í tilefni dagsins, get ekki beðið eftir að knúsa mömmu og Hervar eftir 12 daga. Mamma er sú sem styður mig í einu og öllu og hefur hún alltaf staðið við hlið mér eins og klettur. Við skálum fyrir þér í dag mútta mín!!!


Assgoti er ég samt alltaf þreytt þessa dagana, það er greinilegt að ég hef ekki unnið í 3 ár og erfitt að vakna klukkan hálfsjö og vinna á fullu allan daginn en þetta venst.
Við skelltum okkur í heimsókn til Ástu Laufeyjar og fjölskyldu óvænt í gær og þökkum við fyrir góðar móttökur, rosa gaman að hitta saumaklúbbsvinkonu.

föstudagur, 29. júní 2007

Ég er byrjuð að vinna við heimilishjálp hér í Lystrup í sumar, svona vinna á ekki alveg við mig og býst ég við að vera þarna tímabundið meðan ég leita mér að annarri vinnu. Ég fór að hugsa út í það í dag hvað ég er búinn að læra ótrúlega margt á þessum 3 árum sem ég hef búið hér út í Danmörku, á hverjum degi læri ég eða upplifi ég eitthvað nýtt. Þetta er hin ótrúlegasta lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma, ég hef lent í ótrúlegu veseni, gleði og já bara ótrúlegum hlutum sem eru margar skrifaðar blaðsíður.

Svo ég skrifa aðeins um nýju vinnuna þá er ég búinn að sjá ótrúlega hluti. Ég fer inn á heimili og hjálpa gamla fólkinu og alkahólistum ungum sem gömlum við ýmis verkefni. Guð minn góður þá eru aðstæður hjá sumu fólki ömurlegar og fór ég út frá einum ungum manni sem er alkahólisti með tárin í augunum. Erfiðasta við svona vinnu er að ég tek allt svona svo inn á mig og get ekki hætt að hugsa um það sem ég sé og upplifa þannig að ég er á báðum áttum við að vinna í svona vinnu sem tekur svona andlega á.

Hervar minn fílar sig vel á Íslandi og lætur stjana við sig hægri vinstri, ég er farinn að sakna hans ótrúlega en læt hann ekki heyra það. Litla systir hans skilur ekkert í því á morgnana afhverju rúmið hans Hervars er tómt og vantar henni morgunknús frá Hervari sínum.
Guðrún Ýr vinkona hennar Margrétar Sögu er hérna hjá okkur og er yndislegt að horfa á þær vinkonur saman.
Helgin hljómar upp á bæjarferð með stúlkurnar á morgun og sommerlandsferð í rigningunni á sunnudaginn, þær eru spenntar stelpurnar og geta varla beðið eftir því að hlaupa um í sommerlandi.

Góða helgi allir saman!!

mánudagur, 25. júní 2007

Flippaðar stelpur:)

Geggjað stuð og rosa gaman í gær í afmælinu, mikið hlegið og dansað og sungið. Virkilega skemmtilegar stelpur og stúlkan hæstánægð með daginn. Fleirri myndir á barnalandinu.

sunnudagur, 24. júní 2007

Hervar farinn til Íslands í sumarfrí


Í þessum rituðum orðum er sonur minn í háloftunum á leið til Íslands. Ég er með hnút í maganum því ég veit ég á eftir að sakna hans svo mikið þessar 3 vikur sem hann ætlar að vera hjá ömmu og afa og öðrum ættingjum. Ég veit að það verður dekrað við hann allan tíman og honum á eftir að líða vel en mömmuhjartað er ekki stórt þegar maður er óvanur því að börnin manns fara í svona langan tíma í burtu og hvað þá í annað land en þetta verður geggjað fyrir hann.
Hann gat ekki beðið eftir því í morgun að drífa sig af stað og knúsa afa, ömmu og frænku sína hana Rakel Katrínu sem honum hlakkar mikið til að leika við og frændur sína en tilhlökkunin er mikil eftir að hitta folaldið sitt.

föstudagur, 22. júní 2007

Föstudagur

Við sitjum hér mæðgurnar við eldhúsborðið, sú stutta nældi sér í hita og er því heima að dúlla sér með mömmu og er í þessum rituðum orðum að dæla í sig jógúrti, hún er ótrúlega dugleg að borða sjálf og fáum við foreldrarnir ekkert að hjálpa henni því hún getur sjálf. Það er gaman að fylgjast með henni þessa dagana því henni fer mikið fram í talmáli bæði á dönsku og íslensku og finnst mér hún vera farinn að blanda þessum tveimur tungumálum saman. Hún er líka farinn að reyna að tala með tveggja til þriggja orða setningum. Ég hef ótrúlega gaman að henni og ég elska að fylgjast með henni þroskast og stækka eins og með hin börnin mín sem bæði eru mikið að þroskast og stækka. Margrét mín stækkar og þroskast eins og börn gera nú mikið á þessum árum sérstaklega þegar maður er að breytast úr barni í ungling. Hervar minn er að taka einhvern kipp því fötin hans eru öll að verða of lítil og þarf að dressa drenginn upp eftir sumarfríið þegar stuttbuxurnar og bolirnir verða lagðir til hliðar. Hann er með tvær tennur lausar núna og bíður í ofvæni eftir að missa þær en er ekki mikið fyrir að mamma sé að reyna að losa þær. Ég þakka fyrir hversu heppinn ég er að eiga þessa gullmola mína, þau eru bara yndislegust.

Það er brjálað að gera hjá okkur þessa helgina og ekki finnst okkur það leiðinlegt, fest hjá Hervari í dag, út að borða, og afmæli hjá Margréti fyrir stelpurnar í bekknum hennar á sunnudaginn.

Ég er að reyna að finna einhvern til að taka Hervar með heim til Íslands í smá heimsókn til að kíkja á folaldið sitt, ef þið vitið um einhvern sem hægt er að treysta til þess að taka hann með frá Danmörku til Íslands endilega látið mig vita. Ég vil helst ekki að hann fari seinna til Íslands en í kringum 5. júlí því hann á síðan að koma heim til Danmerkur með ömmu sinni þann 17. júlí.

Jæja best að hætta litla dótturinn kallar ,,mor, mor,,


Góða helgi öllsaman.

mánudagur, 18. júní 2007

Orðinn amma!!


Ég er orðinn amma!!! sonurinn eignaðist folald um helgina og er hann í skýjunum, vill helst panta ferð til Íslands til að sjá fallega afkvæmið sitt. Myndir af barnabarninu koma inn við fyrsta tækifæri:)
Hér gengur allt sinn vanagang, krakkarnir eru enn í skólanum og geta ekki beðið eftir að komast í sumarfrí. Margrét Saga ætlar ásamt vinkonu sinni að halda sameiginlegt afmæli hér á sunnudaginn, þemað er hippar. Þetta verður stelpupartý og verður ábyggilega mikið stuð hér ef ég þekki dóttur mína rétt sem skipuleggur daginn á fullu. Hervar fékk að gista eina nótt hjá frænku sinni og naut sín í botn núna um helgina, honum fannst ekki leiðinlegt að þurfa að vakna snemma um morguninn við brölt frænda síns. Elvira Agla er kát og glöð og er farið að bætast ansi mikið í orðaforða hennar bæði á dönsku og íslensku í gær sagði hún ,,mor kom,, (mamma komdu). Annars er svo sum ekkert að frétta af okkur, læt þetta duga í bili.

föstudagur, 15. júní 2007

óheppin


Sumir eru óheppnari en aðrir. Ansi oft lendi ég í óheppilegum atvikum og það gerðist á laugardaginn hjá mér. Ég fór í útilegu með manninum, Hervari og Margréti Sögu ásamt bekknum hennar Margrétar og foreldrum. Við fórum á stað ca. hálftíma frá okkur sem heitir Ry, þar settum við tjaldið okkar upp og fórum á ströndina í hestavagni og veðrið lék við okkur. Um kvöldið grilluðum við og fórum í leiki og í einum leiknum átti ég að fara út í skóg og vera með einhverja þraut, í skóginum var mikið af mugg. á sunnudagsmorgninum vöknuðum við og fengum okkur morgunmat og gengum frá og lögðum af stað heim, þá fór ég að finna fyrir kláða í fótum og eftir því sem leið á daginn voru fæturnir á mér rauðir af muggubitum sem endaði með ferð til læknis á mánudeginum þar sem hægri fóturinn á mér var orðinn fjórfaldur og fjólublár og ég haltraði út um allt. Endaði þetta með því að vera úrskurðuð með ofnæmi fyrir muggubitum og sett á meðöl og kláðakrem. Ég get ekki lýst því hér hvernig fæturnir á mér litu út en ég var eins og dalmatíuhundur nema með rauða og fjólubláa bletti, ég set mynd inn við tækifæri. Já svona er þetta sumir eru alltaf óheppnir og ég er ein af þeim!!

fimmtudagur, 7. júní 2007

Við erum að kafna úr hita þessa dagana. Hitinn fór upp í 34 gráður í dag og held ég að hún tengdamóðir mín hafi ekki alveg verið við þessu búinn að sitja inn í strætó kófsveitt í öllum þessum hita til að komast niðrí bæ. Hér fara heilu dunkarnir af sólaráburðum á litlu krílin og okkur fullorðna fólkið. Það er yndislegt að hafa hana tengdó hérna hjá okkur og hún heppinn (eða kannski óheppinn) að fá þetta góða veður.

Litla systir og fjölskylda mættu á svæðið í gærkvöldi, sonurinn var í rosa stuði og var hann ánægður að hitta frænkur og frænda sem vöknuðu af spenningi yfir að hitta hann. Ég fékk síðan að dúllast með frænda í dag á meðan þau voru að vesenast í flutningnum og voru frændsystkinin yndisleg, voða góð að leika og virtust njóta lífsins saman í stuttbuxum og bol.

Ég vil óska Óskari og Jónínu til hamingju með prinsinn sem fæddist í dag:)

þriðjudagur, 5. júní 2007

Pabbi á afmæli í dag


Pabbi á afmæli í dag, karlinn er 53 ára. Við fjölskyldan óskum honum innilega til hamingju, þú ert bestur!!!


Það er mikið að gera hjá okkur þessa dagana og það er algjört æði, Ester tengdó er í heimsókn og er það yndislegt við erum búinn að ganga um og njóta góða veðursins. Á morgun mæta Sylvía og fjölskylda á svæðið og hlakka ég mikið til að knúsa litla frænda.

laugardagur, 2. júní 2007

Stúlkan er orðinn 13 ára


Margrét Saga dóttir okkar er 13 ára í dag. Innilegar hamingjuóskir með daginn elsku Margrét, þú ert best!!


Það er alveg ótrúlegt að hugsa til þess að frumburður okkar sé orðinn 13 ára en hún er bara yndislegust og við gætum ekki verið heppnari með dóttur.

fimmtudagur, 31. maí 2007

4. ára brúðkaupsafmæli


Við hjónin eigum 4. ára brúðkaupsafmæli í dag. Í tilefni dagsins ætlum við hjónakornin út að borða.

miðvikudagur, 30. maí 2007

Búinn

Ég er búinn, já næstum búinn á því og búinn með helv....ritgerðina. Ég er hoppandi kát í dag og ætla bara að brosa og brosa og knúsa karlinn og krakkana í staðinn fyrir að vera í stresskasti eins og er búið að vera hjá mér undanfarna daga og vikur. Það er ekki hægt að segja annað en að allir á heimilinu eru búnir að bíða eftir þessum degi í dag.

þriðjudagur, 22. maí 2007

Ég fann um daginn fullt af gömlum myndaalbúmum sem ég hafði ekki skoðað í mörg ár. Við erum búinn að sitja og skoða fjölskyldan albúmin núna undanfarna daga og hlægja yfir því hvað við hjónakornin höfum breyst mikið á undanförnum árum. Það er hægt að segja að við höfum elst ansi mikið og fitnað ansi ansi mikið. Það er greinilegt að við hjúin þurfum að fara í átak allaveganna ÉG. Með komandi sól og hlýnandi veðri er aldrei að vita nema að maður kaupi sér hlaupaskó og reyni að hreyfa á sig rassinn. Ég fékk fyrir löngu síðan sent hlaupaplan sem væri voða gott að fara eftir þegar maður væri að fara að byrja að hreyfa sig eftir langan tíma og hef ég lesið þetta blað fram og aftur með kók í annarri og súkkulaðistykki í hinni!!

mánudagur, 21. maí 2007

Straff

Svo ég skrifi aðeins meira um barnauppeldi að þá voru tvö elstu börnin mín að rífast um daginn og við hjónin ákváðum að þetta gengi ekki lengur og settum þau í straff (sem nota bene við höfum aldrei gert áður en nú átti aldeilis að taka á því). Já straffið hljómaði upp á viku án sjónvarps, tölvu og nammidagurinn var tekinn af þeim á föstudaginn. Þegar við vorum búinn að setja straffið á kom dauðþögn á mannskapinn, börnin sem voru í sjokki yfir straffinu og mömmu og pabba yfir að hafa sett straffið á, straffinu var ekki haggað og ákváðum við að halda okkur við það og börnin svo sum ekki glöð yfir þessu en jú straff er straff. Við sátum síðan við matarborðið í gær eftir að Gunni og Hervar voru búnir að grilla hamborgarana sem Hervar valdi í matinn og eldaði með hjálp föður síns að þá byrjuðum við að ræða þetta straff og komumst við að þeirri niðurstöðu að allt væri búið að vera miklu rólegra hjá okkur, ekkert sjónvarp né tölvuleikir, þau hafa ekki þorað að rífast því þá vissu þau að það myndi bætast við einn dagur við straffið þannig að þau hafa leikið sér eins og litlir englar. Margrét Saga sagði síðan yndislega setningu ,,mamma og pabbi, straffið hefur gert okkur gott því nú erum við orðinn bestu vinir og ef við erum ósammála að þá ræðum við hlutina en förum ekki að rífast,, Já straffið greinilega virkar allaveganna á meðan þau eru í straffi!!!

Endilega verið dugleg að skrifa í comment, gaman væri að heyra hvort fólk væri mótfallið straffi(reyndar svolítið leiðinlegt orð). Ég vil nú reyndar taka það fram að það er nú ekki eins og það sé allt í háalofti hér hversdagslega, þetta sem ég skrifa um núna er eitthvað sem allir foreldrar lenda í að börnunum þeirra lendir saman og hvað skal þá gera til að leysa vandann?

miðvikudagur, 16. maí 2007

Afmæliskveðjur og barnauppeldi á fimmtudagsmorgni



Við mæðgur erum komnar á fætur fyrir nokkru síðan, stúlkan er eins og klukka og vaknar alltaf klukkan 7 á morgnanna það þarf nú ekkert að kvarta yfir því. Eldri börnin geta sofið og sofið og karlinn líka þannig að við tvær dúllum okkur hérna frammi, borðum morgunmat og leikum í bíló eða dúkkó. Í dag er frí hjá krökkunum í skólanum og á morgun líka þannig að stórfjölskyldan er kominn í frí, ég þarf nú reyndar að læra eins og brjálæðingur næstu daga en svo kemur líka frí hjá mér sem ég ætla að njóta.


Þessi mynd er tekinn sumarið 2006


Á morgun á Nói vinur okkar afmæli og verður strákurinn 2 ára einnig á Haukur Stefán 6 ára afmæli á morgun. Teddi veðurfræðingur átti afmæli í fyrradag(nefnum engan aldur). Til hamingju með daginn strákar!!!





Ég hef mikið velt því fyrir mér síðustu daga hvort einhver uppskrift sé af góðu barnauppeldi, til eru margar kenningar hvernig gera skal og hvað maður á alls ekki að gera. Ég hef lesið þó nokkuð mikið í kringum allt sem viðkemur börnum og reynt að taka það sem mér finnst henta mér og fara eftir því. Oft hef ég velt því fyrir mér að þeir sem skrifa bækurnar eða leggja fram kenningar hafi kannski aldrei átt börn, þá set ég spurningarmerki hvort hægt sé að fara eftir þeirra ráðum því reynslan af barnauppeldi verður að vera til staðar finnst mér ef þú vilt sannreyna að kenningin þín sé góð eða marktæk. Við hjónin erum alltaf að velta því fyrir okkur hvort að maður sé að gera rétt með að gera þetta svona eða hinsegin... ,,það er enginn sem sagði að það væri létt að ala upp börn,,

mánudagur, 14. maí 2007

stresskast


Ég á það stundum til að vera ótrúlega stressuð og stressa mig nánast á hlutum sem ég þarf ekki að stressa mig á og svo get ég verið ósköp róleg yfir einhverju sem ég ætti að vera stressuð yfir en annars held ég að ég sé nú frekar róleg manneskja. Nú eru ritgerðarskrif hjá mér og á ég að skila tveimur verkefnum í endan maí, verkefnin stressa mig og ég vakna upp á nóttinni og er að hugsa um verkefnin og er í rauninni ekki á jörðinni því ég er í lærdómsheiminum mínum. Ég hlakka mikið til þegar ég kemst aftur í fjölskylduheiminn og mitt eðlilega líf án þess að hugsa um kenningar allan daginn, reyndar er ég að lesa hrikalega skemmtilega bók sem ég ætla að nota í öðru verkefninu mínu sem fjallar um einstaklingsnámskrár. Í einu stresskastinu mínu í dag þá fékk ég blóðnasir sem ég hef ekki fengið í nokkur ár, var að keyra og allt í einu byrjaði að blæða úr nefinu á mér.


Annars gengur lífið sinn vanagang hér í Lystrup og allir sælir og glaðir. Á laugardaginn fór Hervar í indjánafest í SFO og skemmti sér konunglega. Margrét Saga stækkar og þroskast á hverjum degi og mikið að gerast andlega og líkamlega hjá stúlkunni. Litla skottið reynir að stjórna fjölskyldunni eins og henni er einni lagið og tekst það ágætlega og hefur hún greinilega erft sterka rödd því stúlkan getur gargað og öskrað eins og villt óperusöngkona en hvaðan ætli hún hafi þessa rödd það er stóra spurningin.....

sunnudagur, 13. maí 2007

nýtt blogg

jahhhh......nú er enn og aftur komið nýtt blogg. Er búinn að festa leyniorðið vel í minni þannig að það gleymist ekki. Verð dugleg að blogga hér og þið verðið dugleg að kommenta!!