miðvikudagur, 31. október 2007

Ég var hreinlega búinn að gleyma því hvað mér finnst leiðinlegt að pakka, er á fullu að pakka núna og finnst mér þetta taka ótrúlega langan tíma og vá ég sem hélt við ættum ekkert dót. Þvottavélin ákvað líka að gefast upp á okkur þannig að við þurftum að fjárfesta í nýrri vél sem er ekki kominn í hús, það tekur því nú varla að tengja hana áður en við förum en þá er nú gott að eiga góða granna að og systir sem hægt er að níðast á. Týpískt samt fyrir okkur að lenda í þessu svona rétt fyrir flutninga

Allt er að smella saman hjá okkur og eru 2 vikur í okkur á Íslandið, kvíði svolítið fyrir veðrinu sem er heima núna, svolítill munur á veðurfari hér og á Íslandi. Nú njótum við síðustu dagana hér í Aarhus og löbbum um bæinn og skoðum staði sem við eigum eftir að sakna. Fórum í dag í sund og nutum þess að busla í heitri innilauginni.

Helgin hljómar uppá pökkun auðvitað og jólahlaðborði með vinum okkar hér úti, hlakka mikið til. Krakkarnir fara í pössun til Sylvíu systir og gista þar, þetta verður fyrsta næsturgistingin hennar Elviru Öglu síðan hún fæddist.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Okkur hlakkar sko bara til að fá gríslingana í pössun. Þetta verður pottþétt skemmtilegasta náttfatapartý ársins !!

En ættlaðiru að koma og þvo í dag systa mín :)