fimmtudagur, 27. september 2007

Stórfréttir

Kæru lesendur nú er okkar danska tímabil að líða undir lok, við fjölskyldan höfum tekið ákvörðun að flytja á landið kalda fyrir jól......

Okkur hlakkar mikið til og erum spennt......erum á fullu í undirbúning, langar að minna ykkur á ef þið viljið heyra í okkur að þá er íslenska símanúmerið 496-0143 (okkur finnst alltaf gaman að láta hringja í okkur).

þriðjudagur, 25. september 2007

Mikið að gerast hjá okkur núna...............

fimmtudagur, 20. september 2007

Góða helgi

Ég hef ótrúlega gaman að því að sjá börnin mín þroskast og breytast, tíminn líður ótrúlega hratt, ég reyni að hafa það bakvið eyrun að ég sé einungis með þessa einstaklinga í láni og ætla því að gera eins vel og ég get til að koma þeim áfram í lífinu. Ég vil að þau eigi góðar minningar af okkur sem foreldrum og eigi góðar minningar af samveru okkar saman. Við sjáum helst í gegnum dætur okkar að tíminn líður hratt, sú elsta orðinn unglingur og er að mikið að breytast og mikið að gerast hjá henni og sú stutta stækkar og stækkar og lærir meira og meira. Hervar minn stækkar auðvitað líka eins og systur sínar en á þeim aldri sem hann er á þá sér maður kannski ekki eins miklar breytingar.....

Í morgun var mikið fjör og mikið gaman hjá þeim systkinum og segir sú stutta ,,Hevvar etti kyssa Evvirru,, sú stutta vill auðvitað ráða yfir bróðir sínum og hún reynir eins og hún getur og yfirleitt gefur hann eftir, hann er ótrúlega góður við systir sína og er alltaf að knúsa hana og kyssa og í morgun var hún greinilega eitthvað orðinn leið á þessu kjassi, þegar hún sagði þetta þá horðum við hjónakornin á hvort annað og hugsuðum hún er að verða stór stúlkan enda 2 ára afmæli í næsta mánuði.

Eigið góða helgi öll saman, við ætlum að hugga okkur hér heima og vonumst til að sólin láti sjá sig svo við getum tekið garðinn í gegn og já háaloftið það bíður okkar líka nú á að rífa allt niður og raða og flokka og henda (það erum við ótrúlega léleg í).

mánudagur, 17. september 2007

Mikið er rætt í vinnunni að verðið sé að hækka í matvöruverslunum, mjólk og brauð hefur hækkað en við kókdrykkjufólkið erum búinn að taka eftir því að blessað kókið það lækkar.... Við finnum samt mun á því að það er dýrara að versla inn í matinn núna en fyrir 3 árum þegar við fluttum hingað en við vorum reyndar fjögur þá en fimm núna á heimili. Verðið á matvöru er samt mun lægra hér en heima en samt ekki allt (allaveganna er það þannig í minningunni, hvað segið þið um það þið sem búið á Íslandi?).

Nú er tími útgjalda, þá meina ég tími útifatnaðaútgjalda, tveimur yngstu meðlimunum vantar galla, úlpu, skó vantar á alla krakkana og svona mætti lengi telja.....mikið er nú gott að búa þá í Danmörkinni þar sem hægt er að kaupa allan þennan fatnað á góðum prís. Ef ykkur vantar að láta kaupa fyrir ykkur föt á góðu verði þá skulið þið ekki hika við að hringja kæru vinir og fjölskylda. Ég er nú nokkuð viss um að fatnaður sé ódýrari hér en heima er það ekki?

fimmtudagur, 13. september 2007

Var að detta inn úr dyrunum nýkominn heim úr vinnunni. Húsið er tómt, er búinn að skella í eina þvottavél. Veðrið úti er yndislegt, sólin skín og það er hlýtt. Annars er farið að kólna svolítið hjá okkur og orðið kalt í húsinu á kvöldin þá er um að gera að kveikja á kertum og hafa kósý.

Snúllan mín litla er orðinn svo dugleg að tala og það eru ný og ný orð sem bætast við á hverjum degi og farinn að segja heilu setningarnar. Um helgina verður koppaþjálfun, er ekki viss um að henni finnist það sniðugt það er svo þægilegt að hafa bleyju... Stúlkan á 2. ára afmæli í næsta mánuði, tíminn er svo fljótur að líða, eiginlega bara allt of fljótur og maður sér að hún er svo mikið að stækka og þroskast, ég hef ótrúlega gaman að henni því hún er svo ákveðinn og vill fara sínar leiðir.

Hervar er alltaf spenntur fyrir fimmtudögunum og vill helst koma heim strax eftir skóla því í dag eru skátarnir. Ég er að spá í að búa til aukalykil handa honum að húsinu og þá getur hann komið heim úr skólanum þegar hann vill, hann er nú 8 ára. Ég fór einmitt að spá í því í gærkvöldi þegar hann talaði um það að honum langaði að fá sinn eigin lykil að ef við byggjum á Íslandi þá væri hann ábyggilega löngu kominn með lykil um hálsinn maður verður að passa sig að vernda ekki börnin of mikið.

Það er alltaf nóg að gera hjá Margréti, hún er í gítarkennslu og svo er hún í tveimur hollum í dansi og leikfimi, henni finnst gaman að hafa nóg að gera. Það var svo gaman að henni í gær þegar hún var að læra fyrir fermingarfræðsluna, þá sagði hún ,,ekki vissi ég að maður þyrfti að læra svona mikið og vita svona mikið um Guð og jesú áður en maður fermist,, Úffff hvað lífið getur stundum verið erfitt!!

Svona er lífið í Bögehaven 8

mánudagur, 10. september 2007

Í dag á litla systir mín afmæli, elsku Sylvía innilegar hamingjuóskir með daginn í dag. Við fengum þessar fínu kökur hjá henni í gær og enduðum daginn á að fara í bíó við mæðgur og afmælisbarnið. Fórum á myndina Knocked up, ægilega skemmtileg konu mynd.

Annars er yngsta dóttirinn með einhvern leiðinda hósta sem hrjáir hana töluvert á nóttunni, þannig að nú kúrir hún á milli foreldra sinna sem finnst það ekki leiðinlegt þar sem hún hefur alltaf viljað sofa í sínu rúmi.

Fermingarundirbúningurinn hjá Margréti Sögu er farin á fullt skrið, hún er búinn að fá danska bíblíu og heimaverkefni fyrir næsta tíma. Henni finnst þetta ótrúlega spennandi og hlakkar mikið til. Nú er komið að okkur foreldrunum að fara að hefja undirbúning fyrir stóra daginn.

föstudagur, 7. september 2007

mánudagur, 3. september 2007

Margrét Saga er byrjuð í gítarkennslu, nú spilar hún með pabba sínum og æfir sig þannig. Hún er líka að æfa dans, stúlkan er að verða ansi stór og við horfum á hana stækka og verða að fullorðinni manneskju. Þetta er ótrúlega furðuleg tilfinning að sjá barnið sitt verða að fullorðnum einstaklingi.

Oft kem ég drekkhlaðinn heim úr vinnunni með töskuna fulla af súkkulaði, gamla fólkið er yfirleitt yndislegt og finnst gaman að gefa mér gjafir (þó ég hafi nú ekki gott af öllu þessu súkkulaðiáti), fékk meira að segja hálsmen frá manni um daginn og var það hjartalaga með steinum í. Verst hvað mér finnst þessi vinna ekki vera fyrir mig. Sumir dagar eru góðir en aðrir eru mjög slæmir og ég er við það að gefast upp á þessu, ég dái fólk sem getur unnið við þetta en þetta er eitthvað sem verður ekki mitt framtíðarstarf en ég á eftir að sakna gamla fólksins.