föstudagur, 11. apríl 2008

Afmælisknús handa ykkur vinir mínir

Ég hef oft og mörgum sinnum bloggað um veðrið og var fyrir löngu síðan búinn að ákveða að gera það aldrei aftur en ekki get ég staðið við það. Veðrið hefur ótrúleg áhrif á mig og ábyggilega marga aðra. Í dag skín sólin og reykurinn úr sementsstrompinum rýkur beint upp þannig að það er gott og fallegt veður á skaganum í dag, kannski er það út af því að í dag á ég afmæli!!

Afmælisknús á ykkur öll.........

miðvikudagur, 13. febrúar 2008

Bloggfærsla.......

Jæja hvað segið þið núna, sest niður við tölvuna og skrifa hér blogg handa ykkur vinkonur mínar í baunalandi. Nú læt ég flakka nokkrar fréttir af okkur á landinu kalda.

Frá því að við fluttum hefur ekkert verið annað en kuldi, rok, kuldi, ennþá meira rok...brrr ég er alveg að gefast upp á veðrinu enda mikið að spá í að kaupa handa okkur fjölskyldunni miða í sólina í sumar eða hreinlega í eina danmerkursreisu, það er aldrei að vita hvað manni dettur í hug. Ég er ekkert hissa á því að fólk kaupi sér ferð til útlanda þegar það býr í svona landi þar sem veðrið getur verið ömurlegt allan veturinn......ef ég ætti fullt af peningum þá myndi ég kaupa mér ferð á 4 mánaða fresti.

Annars gengur allt vel hjá okkur og allir glaðir og ánægðir með það sem þeir eru að gera. Nú er á fullu undirbúningur fyrir fermingu frumburðans sem okkur mæðgum finnst nú ekki leiðinlegt að skipuleggja. Fjölskyldufaðirinn er á fullu í leikritaundirbúningi og verður sýnt 29. febrúar. Það er óhætt að segja það að við fjölskyldan verðum ósköp glöð þegar fjölskyldulífið verður aftur eins og það á að vera. En það verður spennandi að fara á frumsýninguna ekki hægt að segja annað en ég sé stolt af karlinum mínum.

Jæja ég læt þetta duga af okkur fjölskyldunni í bili, kannski að ég bloggi bráðum aftur, hver veit.