Ég er byrjuð að vinna við heimilishjálp hér í Lystrup í sumar, svona vinna á ekki alveg við mig og býst ég við að vera þarna tímabundið meðan ég leita mér að annarri vinnu. Ég fór að hugsa út í það í dag hvað ég er búinn að læra ótrúlega margt á þessum 3 árum sem ég hef búið hér út í Danmörku, á hverjum degi læri ég eða upplifi ég eitthvað nýtt. Þetta er hin ótrúlegasta lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma, ég hef lent í ótrúlegu veseni, gleði og já bara ótrúlegum hlutum sem eru margar skrifaðar blaðsíður.
Svo ég skrifa aðeins um nýju vinnuna þá er ég búinn að sjá ótrúlega hluti. Ég fer inn á heimili og hjálpa gamla fólkinu og alkahólistum ungum sem gömlum við ýmis verkefni. Guð minn góður þá eru aðstæður hjá sumu fólki ömurlegar og fór ég út frá einum ungum manni sem er alkahólisti með tárin í augunum. Erfiðasta við svona vinnu er að ég tek allt svona svo inn á mig og get ekki hætt að hugsa um það sem ég sé og upplifa þannig að ég er á báðum áttum við að vinna í svona vinnu sem tekur svona andlega á.
Hervar minn fílar sig vel á Íslandi og lætur stjana við sig hægri vinstri, ég er farinn að sakna hans ótrúlega en læt hann ekki heyra það. Litla systir hans skilur ekkert í því á morgnana afhverju rúmið hans Hervars er tómt og vantar henni morgunknús frá Hervari sínum.
Guðrún Ýr vinkona hennar Margrétar Sögu er hérna hjá okkur og er yndislegt að horfa á þær vinkonur saman.
Helgin hljómar upp á bæjarferð með stúlkurnar á morgun og sommerlandsferð í rigningunni á sunnudaginn, þær eru spenntar stelpurnar og geta varla beðið eftir því að hlaupa um í sommerlandi.
Góða helgi allir saman!!
föstudagur, 29. júní 2007
mánudagur, 25. júní 2007
Flippaðar stelpur:)
sunnudagur, 24. júní 2007
Hervar farinn til Íslands í sumarfrí

Í þessum rituðum orðum er sonur minn í háloftunum á leið til Íslands. Ég er með hnút í maganum því ég veit ég á eftir að sakna hans svo mikið þessar 3 vikur sem hann ætlar að vera hjá ömmu og afa og öðrum ættingjum. Ég veit að það verður dekrað við hann allan tíman og honum á eftir að líða vel en mömmuhjartað er ekki stórt þegar maður er óvanur því að börnin manns fara í svona langan tíma í burtu og hvað þá í annað land en þetta verður geggjað fyrir hann.
Hann gat ekki beðið eftir því í morgun að drífa sig af stað og knúsa afa, ömmu og frænku sína hana Rakel Katrínu sem honum hlakkar mikið til að leika við og frændur sína en tilhlökkunin er mikil eftir að hitta folaldið sitt.
föstudagur, 22. júní 2007
Föstudagur
Við sitjum hér mæðgurnar við eldhúsborðið, sú stutta nældi sér í hita og er því heima að dúlla sér með mömmu og er í þessum rituðum orðum að dæla í sig jógúrti, hún er ótrúlega dugleg að borða sjálf og fáum við foreldrarnir ekkert að hjálpa henni því hún getur sjálf. Það er gaman að fylgjast með henni þessa dagana því henni fer mikið fram í talmáli bæði á dönsku og íslensku og finnst mér hún vera farinn að blanda þessum tveimur tungumálum saman. Hún er líka farinn að reyna að tala með tveggja til þriggja orða setningum. Ég hef ótrúlega gaman að henni og ég elska að fylgjast með henni þroskast og stækka eins og með hin börnin mín sem bæði eru mikið að þroskast og stækka. Margrét mín stækkar og þroskast eins og börn gera nú mikið á þessum árum sérstaklega þegar maður er að breytast úr barni í ungling. Hervar minn er að taka einhvern kipp því fötin hans eru öll að verða of lítil og þarf að dressa drenginn upp eftir sumarfríið þegar stuttbuxurnar og bolirnir verða lagðir til hliðar. Hann er með tvær tennur lausar núna og bíður í ofvæni eftir að missa þær en er ekki mikið fyrir að mamma sé að reyna að losa þær. Ég þakka fyrir hversu heppinn ég er að eiga þessa gullmola mína, þau eru bara yndislegust. Það er brjálað að gera hjá okkur þessa helgina og ekki finnst okkur það leiðinlegt, fest hjá Hervari í dag, út að borða, og afmæli hjá Margréti fyrir stelpurnar í bekknum hennar á sunnudaginn.
Ég er að reyna að finna einhvern til að taka Hervar með heim til Íslands í smá heimsókn til að kíkja á folaldið sitt, ef þið vitið um einhvern sem hægt er að treysta til þess að taka hann með frá Danmörku til Íslands endilega látið mig vita. Ég vil helst ekki að hann fari seinna til Íslands en í kringum 5. júlí því hann á síðan að koma heim til Danmerkur með ömmu sinni þann 17. júlí.
Jæja best að hætta litla dótturinn kallar ,,mor, mor,,
Góða helgi öllsaman.
mánudagur, 18. júní 2007
Orðinn amma!!
Hér gengur allt sinn vanagang, krakkarnir eru enn í skólanum og geta ekki beðið eftir að komast í sumarfrí. Margrét Saga ætlar ásamt vinkonu sinni að halda sameiginlegt afmæli hér á sunnudaginn, þemað er hippar. Þetta verður stelpupartý og verður ábyggilega mikið stuð hér ef ég þekki dóttur mína rétt sem skipuleggur daginn á fullu. Hervar fékk að gista eina nótt hjá frænku sinni og naut sín í botn núna um helgina, honum fannst ekki leiðinlegt að þurfa að vakna snemma um morguninn við brölt frænda síns. Elvira Agla er kát og glöð og er farið að bætast ansi mikið í orðaforða hennar bæði á dönsku og íslensku í gær sagði hún ,,mor kom,, (mamma komdu). Annars er svo sum ekkert að frétta af okkur, læt þetta duga í bili.
föstudagur, 15. júní 2007
óheppin

Sumir eru óheppnari en aðrir. Ansi oft lendi ég í óheppilegum atvikum og það gerðist á laugardaginn hjá mér. Ég fór í útilegu með manninum, Hervari og Margréti Sögu ásamt bekknum hennar Margrétar og foreldrum. Við fórum á stað ca. hálftíma frá okkur sem heitir Ry, þar settum við tjaldið okkar upp og fórum á ströndina í hestavagni og veðrið lék við okkur. Um kvöldið grilluðum við og fórum í leiki og í einum leiknum átti ég að fara út í skóg og vera með einhverja þraut, í skóginum var mikið af mugg. á sunnudagsmorgninum vöknuðum við og fengum okkur morgunmat og gengum frá og lögðum af stað heim, þá fór ég að finna fyrir kláða í fótum og eftir því sem leið á daginn voru fæturnir á mér rauðir af muggubitum sem endaði með ferð til læknis á mánudeginum þar sem hægri fóturinn á mér var orðinn fjórfaldur og fjólublár og ég haltraði út um allt. Endaði þetta með því að vera úrskurðuð með ofnæmi fyrir muggubitum og sett á meðöl og kláðakrem. Ég get ekki lýst því hér hvernig fæturnir á mér litu út en ég var eins og dalmatíuhundur nema með rauða og fjólubláa bletti, ég set mynd inn við tækifæri. Já svona er þetta sumir eru alltaf óheppnir og ég er ein af þeim!!
fimmtudagur, 7. júní 2007
Við erum að kafna úr hita þessa dagana. Hitinn fór upp í 34 gráður í dag og held ég að hún tengdamóðir mín hafi ekki alveg verið við þessu búinn að sitja inn í strætó kófsveitt í öllum þessum hita til að komast niðrí bæ. Hér fara heilu dunkarnir af sólaráburðum á litlu krílin og okkur fullorðna fólkið. Það er yndislegt að hafa hana tengdó hérna hjá okkur og hún heppinn (eða kannski óheppinn) að fá þetta góða veður.
Litla systir og fjölskylda mættu á svæðið í gærkvöldi, sonurinn var í rosa stuði og var hann ánægður að hitta frænkur og frænda sem vöknuðu af spenningi yfir að hitta hann. Ég fékk síðan að dúllast með frænda í dag á meðan þau voru að vesenast í flutningnum og voru frændsystkinin yndisleg, voða góð að leika og virtust njóta lífsins saman í stuttbuxum og bol.
Ég vil óska Óskari og Jónínu til hamingju með prinsinn sem fæddist í dag:)
Litla systir og fjölskylda mættu á svæðið í gærkvöldi, sonurinn var í rosa stuði og var hann ánægður að hitta frænkur og frænda sem vöknuðu af spenningi yfir að hitta hann. Ég fékk síðan að dúllast með frænda í dag á meðan þau voru að vesenast í flutningnum og voru frændsystkinin yndisleg, voða góð að leika og virtust njóta lífsins saman í stuttbuxum og bol.
Ég vil óska Óskari og Jónínu til hamingju með prinsinn sem fæddist í dag:)
þriðjudagur, 5. júní 2007
Pabbi á afmæli í dag

Pabbi á afmæli í dag, karlinn er 53 ára. Við fjölskyldan óskum honum innilega til hamingju, þú ert bestur!!!
Það er mikið að gera hjá okkur þessa dagana og það er algjört æði, Ester tengdó er í heimsókn og er það yndislegt við erum búinn að ganga um og njóta góða veðursins. Á morgun mæta Sylvía og fjölskylda á svæðið og hlakka ég mikið til að knúsa litla frænda.
laugardagur, 2. júní 2007
Stúlkan er orðinn 13 ára
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


