föstudagur, 22. júní 2007

Föstudagur

Við sitjum hér mæðgurnar við eldhúsborðið, sú stutta nældi sér í hita og er því heima að dúlla sér með mömmu og er í þessum rituðum orðum að dæla í sig jógúrti, hún er ótrúlega dugleg að borða sjálf og fáum við foreldrarnir ekkert að hjálpa henni því hún getur sjálf. Það er gaman að fylgjast með henni þessa dagana því henni fer mikið fram í talmáli bæði á dönsku og íslensku og finnst mér hún vera farinn að blanda þessum tveimur tungumálum saman. Hún er líka farinn að reyna að tala með tveggja til þriggja orða setningum. Ég hef ótrúlega gaman að henni og ég elska að fylgjast með henni þroskast og stækka eins og með hin börnin mín sem bæði eru mikið að þroskast og stækka. Margrét mín stækkar og þroskast eins og börn gera nú mikið á þessum árum sérstaklega þegar maður er að breytast úr barni í ungling. Hervar minn er að taka einhvern kipp því fötin hans eru öll að verða of lítil og þarf að dressa drenginn upp eftir sumarfríið þegar stuttbuxurnar og bolirnir verða lagðir til hliðar. Hann er með tvær tennur lausar núna og bíður í ofvæni eftir að missa þær en er ekki mikið fyrir að mamma sé að reyna að losa þær. Ég þakka fyrir hversu heppinn ég er að eiga þessa gullmola mína, þau eru bara yndislegust.

Það er brjálað að gera hjá okkur þessa helgina og ekki finnst okkur það leiðinlegt, fest hjá Hervari í dag, út að borða, og afmæli hjá Margréti fyrir stelpurnar í bekknum hennar á sunnudaginn.

Ég er að reyna að finna einhvern til að taka Hervar með heim til Íslands í smá heimsókn til að kíkja á folaldið sitt, ef þið vitið um einhvern sem hægt er að treysta til þess að taka hann með frá Danmörku til Íslands endilega látið mig vita. Ég vil helst ekki að hann fari seinna til Íslands en í kringum 5. júlí því hann á síðan að koma heim til Danmerkur með ömmu sinni þann 17. júlí.

Jæja best að hætta litla dótturinn kallar ,,mor, mor,,


Góða helgi öllsaman.

Engin ummæli: