Við erum að kafna úr hita þessa dagana. Hitinn fór upp í 34 gráður í dag og held ég að hún tengdamóðir mín hafi ekki alveg verið við þessu búinn að sitja inn í strætó kófsveitt í öllum þessum hita til að komast niðrí bæ. Hér fara heilu dunkarnir af sólaráburðum á litlu krílin og okkur fullorðna fólkið. Það er yndislegt að hafa hana tengdó hérna hjá okkur og hún heppinn (eða kannski óheppinn) að fá þetta góða veður.
Litla systir og fjölskylda mættu á svæðið í gærkvöldi, sonurinn var í rosa stuði og var hann ánægður að hitta frænkur og frænda sem vöknuðu af spenningi yfir að hitta hann. Ég fékk síðan að dúllast með frænda í dag á meðan þau voru að vesenast í flutningnum og voru frændsystkinin yndisleg, voða góð að leika og virtust njóta lífsins saman í stuttbuxum og bol.
Ég vil óska Óskari og Jónínu til hamingju með prinsinn sem fæddist í dag:)
fimmtudagur, 7. júní 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Já við getum víst ekki kvartað hátt´undan veðrinu hér í danaveldi þessa dagana - þó það verði á köflum of heitt tilað vera kyrr lengi.
Er Sylvía og fjölsk. að flytja hingað til Danmerkur?
Þá kvörtum við bara í hljóði;o)
Þetta er of mikill hiti fyrir mína parta en það á nú að kólna á morgun og fara niður í 20 stigin....það er fínn hiti fyrir mig!!
Heiðrún
Loksins fann ég ykkur ;) alltaf að kíkja á BL-ið og skildi bara ekkert í þessu blogg leysi.
Til lukku með dagana ykkar í fjölskydunni og þennan hita maður væri alveg til i að fá svona 10 gráður af þessu hingað.
Vonandi náum við að sjást aðeins í byrjun ágúst.
Allt fínt að frétta af Vallholtinu
Biðjum kærlega að heilsa.
Skrifa ummæli