þriðjudagur, 28. ágúst 2007

Árgangsmót

Það er árgangsmót á laugardaginn hjá árgangi 1976, ohhh mig langar svo ógeðslega mikið. Ég ætla að vera með ykkur í anda kæru jafnaldrar á Akranesi og fá mér einn bjór niðrí bæ á festugen um helgina.

Góða skemmtun (það er sko pottþétt að ég mæti eftir 5 ár)

föstudagur, 24. ágúst 2007

Hervari hlakkar mikið til að hitta afa sinn þegar hann mætir hingað á svæðið í október, nú er farið að telja niður. Stundum er svolítið erfitt að vera langt í burtu frá þeim sem manni þykir vænt um.

Góða helgi.

miðvikudagur, 22. ágúst 2007

Skáti

Sonurinn ákvað að honum langaði að verða skáti, móðirinn bauð honum eitthvað annað, langar þig í íþróttir eða tónlistarskóla spurði hún, nei svaraði sonurinn mig langar bara í skátana. Auðvitað máttu það svaraði móðirinn og fór með drenginn í dag í skátana, sonurinn kom heim stútfullur af fróðleik um Guð. Hervar er í skýjunum eftir fyrsta daginn og bíður spenntur að eigin sögn eftir að læra meira um Guð og annað skemmtilegt eins og hann sagði sjálfur. Ég vona bara að hann læri ekki að syngja þarna því það var maður sem stjórnaði söngnum og söng hann hrikalega falskt að það var pínlegt að hlusta á það (foreldrarnir sem voru þarna litu bara á hvort annað og áttu erfitt með að halda hlátrinum inni í sér) Það er alltaf stuð í skátunum!!!


Elsku Rakel Katrín frænka mín er 2. ára í dag og óskum við fjölskyldan henni til hamingju með afmælið.

miðvikudagur, 15. ágúst 2007

Í dag er stór dagur hér í Danmörku. Í dag er bannað að reykja inn á skemmtistöðum og veitingastöðum, mikið er ég ánægð, ég hlakka til að setjast niður á kaffihús án þess að fá reyk á mig. Ég man þegar ég var með Elviru pinkulitla niðrí bæ og settist niður og ætlaði að gefa henni og fá mér eitthvað að borða í leiðinni var oft erfitt að finna sæti þar sem maður gat verið laus við reyk það fer líka alltaf svolítið í taugarnar á mér þegar ég fer út að borða og fæ reyk yfir mig frá næsta borði á meðan ég borða......þetta er gleðidagur fyrir okkur sem reykja ekki. Það voru mótmæli í miðbænum í dag þar sem samankomnir voru reykingamenn og konur til að mótmæla þessu banni.

Annars byrjuðu krakkarnir í skólanum í dag, Hervar í 2.b og Margrét í 7.a. Mikil spenna var í gangi fyrir deginum en þeim líst vel á og voru hress og kát þegar þau komu heim.

Diskóþema hjá gámafélaginu á föstudaginn, ég fór og keypti mér geggjaða gullskó (hrikalega hallærislegir) í gær fyrir 49 krónur!! núna erum við hjónakornin á fullu að finna búninga á okkur.......eruð þið með hugmyndir???

sunnudagur, 12. ágúst 2007

Kim Larsen tónleikar í gær

Við hjónakornin skelltum okkur í gær á tónleika hjá meistara Kim Larsen. Geggjaðir tónleikar og frábært stuð og ekki skemmdi fyrir að bassaleikarinn var algjört súkkulaði og vá hvað munnurinn á Kim Larsen er hrikalega stór og tungan líka þetta er ótrúlegt ég vissi það áður að hann væri með stóran munn en vá kannski ekki alveg svona. Þetta eru með bestu tónleikum sem ég hef farið á, skemmtilegt að vera á svona útitónleikum í geggjuðu veðri.

Börnin voru í pössun á meðan hjá Sylvíu systir alveg eins og í gamla daga þegar hún var lítil stelpa þá var maður alltaf að hringja í hana og biðja hana um að passa Margréti og núna 10 árum seinna er hún enn að passa barnaskarann minn, takk Sylvía mín.

Farið var í sommerlandsferð í dag og var mikið gaman og mikið stuð, litla hjartað hún Margrét okkar fór í öll tækin, það er ótrúlegt í hennar tilfelli.......

föstudagur, 3. ágúst 2007

Vinnuvikunni er lokið og er ég búinn að skrifa undir samning í vinnunni. Samningurinn hljómar samt þannig að ég get rift honum hvenær sem ég vil og þarf ekki að vinna upp uppsagnarfrestinn ef ég finn einhverja aðra vinnu sem mér finnst vera meira spennandi. Er á fullu að sækja um kennarastöður og vonast til að fá jákvæð svör. Mér líkar samt ágætlega þessi vinna sem ég er í og finnst mér virkilega gaman að hitta margt af þessu gamla fólki, verra er að launin eru ömurleg þetta er nánast eins og maður sé í sjálfboðavinnu. Kosturinn er þó að ég get hjólað í vinnuna og er ekkert háð bíl og er á fullu við að snakke dansk.

Gunni og Margrét keyrðu á vesturströndina í dag með Agli og börnum til að fara á tónleika, ætla að gista hjá Tedda og fjölskyldu og síðan koma þau öll hingað á morgun. Helgin hljómar upp á afmælisveislu og ferð í sommerland, gaman gaman.......

Góða helgi og farið varlega um verslunarmannahelgina.