Sonurinn ákvað að honum langaði að verða skáti, móðirinn bauð honum eitthvað annað, langar þig í íþróttir eða tónlistarskóla spurði hún, nei svaraði sonurinn mig langar bara í skátana. Auðvitað máttu það svaraði móðirinn og fór með drenginn í dag í skátana, sonurinn kom heim stútfullur af fróðleik um Guð. Hervar er í skýjunum eftir fyrsta daginn og bíður spenntur að eigin sögn eftir að læra meira um Guð og annað skemmtilegt eins og hann sagði sjálfur. Ég vona bara að hann læri ekki að syngja þarna því það var maður sem stjórnaði söngnum og söng hann hrikalega falskt að það var pínlegt að hlusta á það (foreldrarnir sem voru þarna litu bara á hvort annað og áttu erfitt með að halda hlátrinum inni í sér) Það er alltaf stuð í skátunum!!!
Elsku Rakel Katrín frænka mín er 2. ára í dag og óskum við fjölskyldan henni til hamingju með afmælið.
miðvikudagur, 22. ágúst 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Eitt sinn skáti ávallt skáti ...hehe mér finnst bara frábært þegar að krakkarnir taka þátt í einhverju félagslífi utan skóla.
Ert þú á leiðinni á árgangsmót ?
hæ Ásta
Nei ætli ég fari nokkuð á árgangsmótið þó mér langi alveg óóóógeðslega mikið. Ætlar þú að fara?
nebb því miður .... annars er stór pottur í lottóinu um helgina - Ef ég fæ hann býð ég þér með mér á síðustu stundu hehe.
Skrifa ummæli