Jæja hvað segið þið núna, sest niður við tölvuna og skrifa hér blogg handa ykkur vinkonur mínar í baunalandi. Nú læt ég flakka nokkrar fréttir af okkur á landinu kalda.
Frá því að við fluttum hefur ekkert verið annað en kuldi, rok, kuldi, ennþá meira rok...brrr ég er alveg að gefast upp á veðrinu enda mikið að spá í að kaupa handa okkur fjölskyldunni miða í sólina í sumar eða hreinlega í eina danmerkursreisu, það er aldrei að vita hvað manni dettur í hug. Ég er ekkert hissa á því að fólk kaupi sér ferð til útlanda þegar það býr í svona landi þar sem veðrið getur verið ömurlegt allan veturinn......ef ég ætti fullt af peningum þá myndi ég kaupa mér ferð á 4 mánaða fresti.
Annars gengur allt vel hjá okkur og allir glaðir og ánægðir með það sem þeir eru að gera. Nú er á fullu undirbúningur fyrir fermingu frumburðans sem okkur mæðgum finnst nú ekki leiðinlegt að skipuleggja. Fjölskyldufaðirinn er á fullu í leikritaundirbúningi og verður sýnt 29. febrúar. Það er óhætt að segja það að við fjölskyldan verðum ósköp glöð þegar fjölskyldulífið verður aftur eins og það á að vera. En það verður spennandi að fara á frumsýninguna ekki hægt að segja annað en ég sé stolt af karlinum mínum.
Jæja ég læt þetta duga af okkur fjölskyldunni í bili, kannski að ég bloggi bráðum aftur, hver veit.
miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)