Jæja hvað segið þið núna, sest niður við tölvuna og skrifa hér blogg handa ykkur vinkonur mínar í baunalandi. Nú læt ég flakka nokkrar fréttir af okkur á landinu kalda.
Frá því að við fluttum hefur ekkert verið annað en kuldi, rok, kuldi, ennþá meira rok...brrr ég er alveg að gefast upp á veðrinu enda mikið að spá í að kaupa handa okkur fjölskyldunni miða í sólina í sumar eða hreinlega í eina danmerkursreisu, það er aldrei að vita hvað manni dettur í hug. Ég er ekkert hissa á því að fólk kaupi sér ferð til útlanda þegar það býr í svona landi þar sem veðrið getur verið ömurlegt allan veturinn......ef ég ætti fullt af peningum þá myndi ég kaupa mér ferð á 4 mánaða fresti.
Annars gengur allt vel hjá okkur og allir glaðir og ánægðir með það sem þeir eru að gera. Nú er á fullu undirbúningur fyrir fermingu frumburðans sem okkur mæðgum finnst nú ekki leiðinlegt að skipuleggja. Fjölskyldufaðirinn er á fullu í leikritaundirbúningi og verður sýnt 29. febrúar. Það er óhætt að segja það að við fjölskyldan verðum ósköp glöð þegar fjölskyldulífið verður aftur eins og það á að vera. En það verður spennandi að fara á frumsýninguna ekki hægt að segja annað en ég sé stolt af karlinum mínum.
Jæja ég læt þetta duga af okkur fjölskyldunni í bili, kannski að ég bloggi bráðum aftur, hver veit.
miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Það væri nú bara skemmtilegt ef að þið mynduð koma til danaveldis.. ykkar er svo sannarlega saknað hér.
Væri alveg til í að sjá leikritið hans Gunna og að mæta í fermingju hjá bestu frænku.. eeeeen maður getur víst ekki gert allt sem að manni langar til.. það er alveg á hreinu
Endilega bloggaðu meira, en hvernig er með barnaland? Fæ ég ekkert að sjá myndir af mínum bestustubestu???
Kossar og klessuknús í kotið
Jibbíjei.. Christel er búin að blogga!!
Takk æðislega fyrir hana Heklu. Hún er svakalega glöð með þetta!! (ekkert oj ;o))
Gaman að fá fréttir af ykkur og mikið vona ég að þið komið til danaveldis í sumar. Þið eruð alltaf velkomin í Bøgehaven.
Gangi ykkur öllum vel í alls konar undirbúningi og endilega haltu áfram að blogga stelpa;o)
Knús á ykkur öll,
Heiðrún
Frumsýning í kvöld.. vildi bara óska Gunna mínum góðs gengis.. væri svo til í að vera gera mig til núna og vera á leið á frumsýningu..
Knús Sylvía
Toj, toj, Gunni minn;o)
Knús frá B17
Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the Servidor, I hope you enjoy. The address is http://servidor-brasil.blogspot.com. A hug.
Skrifa ummæli