föstudagur, 29. júní 2007

Ég er byrjuð að vinna við heimilishjálp hér í Lystrup í sumar, svona vinna á ekki alveg við mig og býst ég við að vera þarna tímabundið meðan ég leita mér að annarri vinnu. Ég fór að hugsa út í það í dag hvað ég er búinn að læra ótrúlega margt á þessum 3 árum sem ég hef búið hér út í Danmörku, á hverjum degi læri ég eða upplifi ég eitthvað nýtt. Þetta er hin ótrúlegasta lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma, ég hef lent í ótrúlegu veseni, gleði og já bara ótrúlegum hlutum sem eru margar skrifaðar blaðsíður.

Svo ég skrifa aðeins um nýju vinnuna þá er ég búinn að sjá ótrúlega hluti. Ég fer inn á heimili og hjálpa gamla fólkinu og alkahólistum ungum sem gömlum við ýmis verkefni. Guð minn góður þá eru aðstæður hjá sumu fólki ömurlegar og fór ég út frá einum ungum manni sem er alkahólisti með tárin í augunum. Erfiðasta við svona vinnu er að ég tek allt svona svo inn á mig og get ekki hætt að hugsa um það sem ég sé og upplifa þannig að ég er á báðum áttum við að vinna í svona vinnu sem tekur svona andlega á.

Hervar minn fílar sig vel á Íslandi og lætur stjana við sig hægri vinstri, ég er farinn að sakna hans ótrúlega en læt hann ekki heyra það. Litla systir hans skilur ekkert í því á morgnana afhverju rúmið hans Hervars er tómt og vantar henni morgunknús frá Hervari sínum.
Guðrún Ýr vinkona hennar Margrétar Sögu er hérna hjá okkur og er yndislegt að horfa á þær vinkonur saman.
Helgin hljómar upp á bæjarferð með stúlkurnar á morgun og sommerlandsferð í rigningunni á sunnudaginn, þær eru spenntar stelpurnar og geta varla beðið eftir því að hlaupa um í sommerlandi.

Góða helgi allir saman!!

Engin ummæli: