Ég hef ótrúlega gaman að því að sjá börnin mín þroskast og breytast, tíminn líður ótrúlega hratt, ég reyni að hafa það bakvið eyrun að ég sé einungis með þessa einstaklinga í láni og ætla því að gera eins vel og ég get til að koma þeim áfram í lífinu. Ég vil að þau eigi góðar minningar af okkur sem foreldrum og eigi góðar minningar af samveru okkar saman. Við sjáum helst í gegnum dætur okkar að tíminn líður hratt, sú elsta orðinn unglingur og er að mikið að breytast og mikið að gerast hjá henni og sú stutta stækkar og stækkar og lærir meira og meira. Hervar minn stækkar auðvitað líka eins og systur sínar en á þeim aldri sem hann er á þá sér maður kannski ekki eins miklar breytingar.....
Í morgun var mikið fjör og mikið gaman hjá þeim systkinum og segir sú stutta ,,Hevvar etti kyssa Evvirru,, sú stutta vill auðvitað ráða yfir bróðir sínum og hún reynir eins og hún getur og yfirleitt gefur hann eftir, hann er ótrúlega góður við systir sína og er alltaf að knúsa hana og kyssa og í morgun var hún greinilega eitthvað orðinn leið á þessu kjassi, þegar hún sagði þetta þá horðum við hjónakornin á hvort annað og hugsuðum hún er að verða stór stúlkan enda 2 ára afmæli í næsta mánuði.
Eigið góða helgi öll saman, við ætlum að hugga okkur hér heima og vonumst til að sólin láti sjá sig svo við getum tekið garðinn í gegn og já háaloftið það bíður okkar líka nú á að rífa allt niður og raða og flokka og henda (það erum við ótrúlega léleg í).
fimmtudagur, 20. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli