þriðjudagur, 23. október 2007

Við hjónin fórum í smá leiðangur í gær, okkur vantar ýmsa hluti áður en við förum heim sem við tímum ekki að kaupa helmingi dýrari þegar við komum.
Ég á eftir að sakna ótrúlega margs hér frá Danmörkinni, okkur er búið að líða vel hér og höfum gert margt sem við hefðum aldrei annars gert, það er eiginlega hægt að segja að þetta sé búið að vera eitt stórt ævintýri sem aldrei mun gleymast. Ég á eftir að sakna veðursins og grænu náttúrunnar, bambagarðsins, matsins....ekki má gleyma vinum okkar hér sem ég mun sakna óendanlega mikið, maður er eiginlega hættur að segja að þeir séu vinir manns þeir eru frekar vinir og fjölskylda okkar.......ohh það er bara svo margt sem ég á eftir að sakna en við horfum björt framávið og hlökkum til að takast á við ný verkefni á Íslandi.

1 ummæli:

Erla sagði...

þetta er erfitt, plúsar og mínusar á báðum stöðum. Skil það mjög vel :)

En gott að þið eruð búin að ákveða ykkur og hafið eitthvað að stefna að og getið hafist handa við undirbúninginn.

Mér vex nú svolítið í augum, að fara að pakka aftur í gám...:)

gangi ykkur vel, kv. Erla