miðvikudagur, 16. maí 2007

Afmæliskveðjur og barnauppeldi á fimmtudagsmorgni



Við mæðgur erum komnar á fætur fyrir nokkru síðan, stúlkan er eins og klukka og vaknar alltaf klukkan 7 á morgnanna það þarf nú ekkert að kvarta yfir því. Eldri börnin geta sofið og sofið og karlinn líka þannig að við tvær dúllum okkur hérna frammi, borðum morgunmat og leikum í bíló eða dúkkó. Í dag er frí hjá krökkunum í skólanum og á morgun líka þannig að stórfjölskyldan er kominn í frí, ég þarf nú reyndar að læra eins og brjálæðingur næstu daga en svo kemur líka frí hjá mér sem ég ætla að njóta.


Þessi mynd er tekinn sumarið 2006


Á morgun á Nói vinur okkar afmæli og verður strákurinn 2 ára einnig á Haukur Stefán 6 ára afmæli á morgun. Teddi veðurfræðingur átti afmæli í fyrradag(nefnum engan aldur). Til hamingju með daginn strákar!!!





Ég hef mikið velt því fyrir mér síðustu daga hvort einhver uppskrift sé af góðu barnauppeldi, til eru margar kenningar hvernig gera skal og hvað maður á alls ekki að gera. Ég hef lesið þó nokkuð mikið í kringum allt sem viðkemur börnum og reynt að taka það sem mér finnst henta mér og fara eftir því. Oft hef ég velt því fyrir mér að þeir sem skrifa bækurnar eða leggja fram kenningar hafi kannski aldrei átt börn, þá set ég spurningarmerki hvort hægt sé að fara eftir þeirra ráðum því reynslan af barnauppeldi verður að vera til staðar finnst mér ef þú vilt sannreyna að kenningin þín sé góð eða marktæk. Við hjónin erum alltaf að velta því fyrir okkur hvort að maður sé að gera rétt með að gera þetta svona eða hinsegin... ,,það er enginn sem sagði að það væri létt að ala upp börn,,

4 ummæli:

Gunnur sagði...

Takk fyrir afmæliskveðjuna og pössunina í gær! Ég veit ekki hvar við værum án ykkar þessa dagana ;)

Nafnlaus sagði...

Það er nú bara stærsta verkefnið finnst mér að ala upp börnin sín í þessu lífi. Mjög tilfinningaríkt hlutverk og sjaldan sem maður er í einu og öllu sammála nokkurri manneskju í þeim efnunum. Bara gaman... bestu kveðjur
Helga

Nafnlaus sagði...

Ég er alveg sammála þér Helga það er yndislegt hlutverk að fá að vera foreldri og já það er bara það skemmtilegasta í heimi.

Gunnur mín það er nú svo gaman að fá að passa krakkana þína, hlakka til að fá að prófa að passa Furu líka.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með nýja bloggið Christel mín! Ég var bara að finna það núna.

Ég held að þaðsé mjög mikilvægt að geta verið afslappaður með börnunum sínum. Það þarf alls ekki alltaf að vera eitthvað prógram í kring um þau. Sum börn kunna ekki að leika sér eða dunda sér því að það er alltaf gert allt fyrir þau.

Minna stress og meiri afslöppun;o)

En það er nú BARA mín skoðun.... sem betur fer höfum við misjafnar skoðanir á hlutunum!

Heiðrún