mánudagur, 21. maí 2007

Straff

Svo ég skrifi aðeins meira um barnauppeldi að þá voru tvö elstu börnin mín að rífast um daginn og við hjónin ákváðum að þetta gengi ekki lengur og settum þau í straff (sem nota bene við höfum aldrei gert áður en nú átti aldeilis að taka á því). Já straffið hljómaði upp á viku án sjónvarps, tölvu og nammidagurinn var tekinn af þeim á föstudaginn. Þegar við vorum búinn að setja straffið á kom dauðþögn á mannskapinn, börnin sem voru í sjokki yfir straffinu og mömmu og pabba yfir að hafa sett straffið á, straffinu var ekki haggað og ákváðum við að halda okkur við það og börnin svo sum ekki glöð yfir þessu en jú straff er straff. Við sátum síðan við matarborðið í gær eftir að Gunni og Hervar voru búnir að grilla hamborgarana sem Hervar valdi í matinn og eldaði með hjálp föður síns að þá byrjuðum við að ræða þetta straff og komumst við að þeirri niðurstöðu að allt væri búið að vera miklu rólegra hjá okkur, ekkert sjónvarp né tölvuleikir, þau hafa ekki þorað að rífast því þá vissu þau að það myndi bætast við einn dagur við straffið þannig að þau hafa leikið sér eins og litlir englar. Margrét Saga sagði síðan yndislega setningu ,,mamma og pabbi, straffið hefur gert okkur gott því nú erum við orðinn bestu vinir og ef við erum ósammála að þá ræðum við hlutina en förum ekki að rífast,, Já straffið greinilega virkar allaveganna á meðan þau eru í straffi!!!

Endilega verið dugleg að skrifa í comment, gaman væri að heyra hvort fólk væri mótfallið straffi(reyndar svolítið leiðinlegt orð). Ég vil nú reyndar taka það fram að það er nú ekki eins og það sé allt í háalofti hér hversdagslega, þetta sem ég skrifa um núna er eitthvað sem allir foreldrar lenda í að börnunum þeirra lendir saman og hvað skal þá gera til að leysa vandann?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ÉG er fylgjandi straffi þegar það á við. Það er ekki hægt að nota straff á allt en stundum hefur það góð áhrif, Nína segir reyndar stundum á móti, mamma ertu að hóta mér? Í raun er þetta lítið annað en það hefur samt sitt gildi. Slæmt mál er hins vegar þegar börnunum er alveg sama, t.d. ef Hervar og Margr.Saga hefðu sagt okkur er alveg sama þótt við fáum ekki að horfa á sjónvarp osfrv. þá er maður í slæmum málum.

Mín uppeldislína er sú að börn verði að hafa reglu, annars veldur það óöryggi hjá þeim og því að þau kannski líma sig of við foreldrana því kannski gætu þau komið því við að eitthvað í ákvörðuninni mundi breytast. En það er líka mikilvægt að geta breytt út frá reglunni, eins og þegar afmæli, jól eða bara góð mynd í sjónvarpinu. Ég er á móti miklu sjónvarpsglápi og tölvunotkun, finnst að börn eigi frekar að mála, lesa, leika sér en oft veldur það því að foreldrarnir eru líka uppteknir við það sem barnið er að gera en það er að mínu mati einmitt hlutverk okkar sem foreldra.

Við erum einmitt að koma á reglu á svefninn hjá Balthasar og þar er einmitt regla rosalega mikilvægur þáttur. Alveg frábært þegar maður sér þetta svona greinilega í uppeldinu.

Mér finnst þetta frábært hjá ykkur og kannski þurfið þið aldrei aftur að gera straff, þar sem þetta hafði svona mikil áhrif.

Gangi okkur öllum vel í uppeldinu, kveðja
HElga

Nafnlaus sagði...

En gaman ad heyra sma um uppeldid. Thetta er flokid fyrirbæri og mer finnst eg stundum vera versta mamma i heimi :) Hja okkur duga hotanirnar enn vid Mána, en thad kemur ad thvi ad hann fer ad ganga lengra og tha verdur madur vist ad standa vid thad sem madur segir. Mer finnst nefnilega mikilvægast ad börnin geti treyst thvi ad madur meini thad sem madur segir. Ja er ja og nei er nei og straf er straf.
Mer finnst flestir i kringum mig vera ad pæla mikid i uppeldi og standa sig vel, held lika ad vid verdum ad muna ad vid lifdum nu ymislegt af :)
I dag snjoar i Reykjavik.... eg er svo aldeilis hlessa... :) ha ha

kvedjur, Erla

Nafnlaus sagði...

Mér finnst að maður eigi nú einmitt að prófa sig áfram og sjá hvað virkar og ég er sammála því að foreldrar verði að standa við það sem þeir segja.

Aftur á móti finnst mér það ekki vera hlutverk okkar foreldra að vera sífellt upptekin við að hafa ofan af fyrir börnum. Börn verða að læra að vera sjálfum sér nóg.

Ég hef ekki notað straff og verið kannski allt of slök í þessum málum. Snorri var svolítið mikið í tölvunni í vetur en núna hreyfir hann varla við henni og er úti í fotbolta öll kvöld....Ég gæti samt vel trúa því að hún Hekla mín fari einhverntíma í straff!! Svona eru börnin nú misjöfn;o)

Heiðrún