laugardagur, 17. nóvember 2007

Erum komin uppá skaga, ferðin heim gekk vel fyrir utan að Elvira varð veik og er enn. Stúlkan ætlar að rífa það úr sér núna um helgina svo hún komist í aðlögun á Skátaselið á mánudaginn. Krakkarnir búnir með fyrsta daginn í skólanum og gekk vel. Heimþráin er samt mikil hjá þeirri stóru. Nú bíðum við bara eftir gámnum og íbúðinni. Fullorðna fólkið byrjar að vinna á næstu dögum. Erum sæl og ánægð á íslandinu, yndislegt að hitta fjölskyldu og vini þó veðrið sé ömurlegt í dag...þvílíkur kuldi.

Bið að heilsa öllum í Danmörkinni.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hér í Árósum ríkir söknuður.. held að Theodóri þætti ekki leiðinlegt að fara að æslabelgast með Elviru og Hervari. Gott að skólinn gekk vel, hlakka til að heyra í þér.

Vonandi fer Elviru sætu að batna.

Aðeins 30 dagar í íslandsheimsókn :)

Nafnlaus sagði...

Hæ Christel

velkomin heim. Lattu mig vita hvar thid erud vid tækifæri. Eg kem upp a skaga ødru hvoru. væri gaman ad kikja vid. Hvar erud thid ad fara ad vinna? Godan bata til dullunar.

kvedjur Erla

gsm 615-1608

Gunnur sagði...

Frábært!
Mikið er ég glöð að sjá blogg frá þér Christel mín. Nói lá á útidyrahurðinni í þarnæsta í gær og skildi ekkert í því að enginn kom til dyra ;)

Gangi ykkur vel!

Nafnlaus sagði...

Æi ég sakna ykkar ótrúlega stelpur og krakkana ykkar, skoðuðum barnaland í gær og ég sat hér við tölvuna með tárin í augunum...farið bara að drífa ykkur heim!!!!!!

Erla við ætlum að eiga heima á Hagaflöt 11, fáum íbúðina í síðasta lagi 1. des. Endilega kíkið við hjá okkur.

Nafnlaus sagði...

Ég er búin að hugsa mikið til ykkar og vona að allt gangi vel hjá ykkur.

Ég hlakka mikið til að heyra meira... íslenska númerið okkar er: 499-0421.

Knús á ykkur öll og eitt extra á frumburðinn ykkar;o)

Saknaðarkveðjur úr B17