föstudagur, 15. júní 2007

óheppin


Sumir eru óheppnari en aðrir. Ansi oft lendi ég í óheppilegum atvikum og það gerðist á laugardaginn hjá mér. Ég fór í útilegu með manninum, Hervari og Margréti Sögu ásamt bekknum hennar Margrétar og foreldrum. Við fórum á stað ca. hálftíma frá okkur sem heitir Ry, þar settum við tjaldið okkar upp og fórum á ströndina í hestavagni og veðrið lék við okkur. Um kvöldið grilluðum við og fórum í leiki og í einum leiknum átti ég að fara út í skóg og vera með einhverja þraut, í skóginum var mikið af mugg. á sunnudagsmorgninum vöknuðum við og fengum okkur morgunmat og gengum frá og lögðum af stað heim, þá fór ég að finna fyrir kláða í fótum og eftir því sem leið á daginn voru fæturnir á mér rauðir af muggubitum sem endaði með ferð til læknis á mánudeginum þar sem hægri fóturinn á mér var orðinn fjórfaldur og fjólublár og ég haltraði út um allt. Endaði þetta með því að vera úrskurðuð með ofnæmi fyrir muggubitum og sett á meðöl og kláðakrem. Ég get ekki lýst því hér hvernig fæturnir á mér litu út en ég var eins og dalmatíuhundur nema með rauða og fjólubláa bletti, ég set mynd inn við tækifæri. Já svona er þetta sumir eru alltaf óheppnir og ég er ein af þeim!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það má með sanni segja að þú getur verið ansi óheppin Christel mín. Ég er búin að heyra ansi margar sögurnar af þér!

Það var nú gott að þetta lagaðist því af lýsingunum af dæma var þetta rosalegt.

En samt ertu líka heppin!! Þú átt yndislega fjölskyldu og eiginmann og vini. Þú ert hamingjusöm og þér líður vel...

Ég er líka ótrúlega heppin...því að ég þekki þig!!!

*knús* Heiðrún

p.s. ég sé þig vonandi eitthvað á morgun, ég ætla að láta tölvuna eiga sig og njóta dagsins;o)

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir falleg orð Heiðrún mín, ég er líka heppin að þekkja þig. Ég er nú öllu betri í fætinum,smá kláði en hætt að haltra um og er ekki lengur svona bólginn.

Helga sagði...

Leiðinlegt að lenda í svona, það er eins og þeir sæki í vissa blóðflokka þessi skriðdýr. Vonandi ertu vopnuð réttu áhöldunum fyrir næstu orrustu.

Kveðja Helga