föstudagur, 21. desember 2007

Jólakveðja

Sæl kæru vinir

Við viljum óska ykkur gleðilegra jóla og farsælts komandi nýtt ár.

Það er allt gott að frétta af okkur, erum öll kominn í jólafrí og njótum þess að vera saman og undirbúa jólin þó ekki sé nú mikið stressið á okkur enda vorum við búinn að kaupa allar jólagjafir úti áður en við komum. Keyptum jólatré í gær (svolítið mikið dýrara en í danmörkinni) en jólakortin hafa eitthvað gleymst og erum við hjónin sein í ár, elsku fólk í útlöndum þið fáið nýárskveðjur frá okkur, er ekki bara gaman að fá kort svona á milli jóla og nýárs?? Takk fyrir allar yndislegu heimsóknirnar og knúsin sem við höfum fengið síðastliðinn mánuð.

Hafið það gott og njótið jólahátíðarinnar.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég vildi að ég gæti skroppið aðeins til ykkar í heimsókn og knúsað ykkur. Það væri ekki verra..

Ég vona að þið hafið það gott yfir hátíðarnar sem og alltaf og ég vona að við hittumst sem fyrst á nýju ári.

Þið eruð alltaf velkomin í heimsókn!!

Knús á línuna;o)

Heiðrún

Nafnlaus sagði...

Gostei muito desse post e seu blog é muito interessante, vou passar por aqui sempre =) Depois dá uma passada lá no meu site, que é sobre o CresceNet, espero que goste. O endereço dele é http://www.provedorcrescenet.com . Um abraço.

Nafnlaus sagði...

hæ hæ kæra fjöls´kylda það kom að því að ég settist niður til að kvitta. Við óskum ykkur gleðilegs árs og þúsund þakkir fyrir gamalt -stutt en gott héðan fóru engin jólakort eða kveðjur á netinu fyrir jólin og heldur ekki milli jóla og nýárs en ég vona að þið hafið það gott á nýjum stað í nýju húsnæði og nýrri vinnu og að öllum líði vel að vera komin heim aftur.
Hafið það sem allra best og vona að draumar og óskir rætist nú á nýja árinu.
Kveðja Ásta Laufey og fjölsk.

( eru þið með smart síman tengdan ?)

Nafnlaus sagði...

Ég væri sko alveg til í að fá eins og eitt og eitt blogg svona við og við....

Miss U

Knús,
Heiðrún

Nafnlaus sagði...

Eru þið frosin þarna í kuldanum Christel mín væri ekki notalegt að skella sér í lopapeysu og ullasokka ....kveikja kannski á kerti og góðri tónlist og setjast svo niður við tölvuna og blogga smá fyrir okkur hin ???? eða eru þið kannski að gleyma ykkur í ísl. stressi ???
Annars knús á línuna
kveðja úr sveitinni.

Nafnlaus sagði...

sorry verð víst að kvitta fyrir síðustu færslu
kv. Ásta og co