laugardagur, 3. nóvember 2007

Kveðja

Þetta verður mín síðasta bloggfærsla héðan úr Danmörkinni, efast reyndar um að ég eigi eftir að blogga eftir að ég flyt. Þetta blogg hefur aðallega verið gert fyrir ættingja og vini á meðan við höfum dvalið í baunalandinu.

Takk fyrir að fylgjast með og skrifa komment.

Þið sem búið á Íslandi þá verður voða gaman að hitta ykkur, eigum flug þann 13. nóvember og þið sem eigið heima í Danmörkinni-----ég á eftir að sakna ykkar!!!!

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er að reyna að hugsa ekki mikið um þetta núna.... en ég á eftir að sakna ykkar hryllilega mikið!!!!

*knús*
Heiðrún

Nafnlaus sagði...

mér finnst að þú eigir að sletta smá inn á bloggið annars lagið fyrir okkur sem erum eftir í Danmörkinni, eb viljum gjarnan fá að fylgjast með hvernig gengut heima.
Sjáumsy vonandi áður en þið flýið.
Nkótið síðustu daganna.

Nafnlaus sagði...

Þvílíkar innsláttar villur en það skilst vonandi hehe.

Nafnlaus sagði...

Mikið hlakkar okkur til að fá ykkur heim.
Gangi ykkur vel að pakka og njótið síðustu dagana í Danaveldi.
Kv. Kritrún.

Nafnlaus sagði...

Já seigi það sama og Heiðrún ég reyni bara að hugsa sem minnst um þetta. Við eigum eftir að sakna ykkar allra alveg rosalega mikið og ég held að hann Theodór eigi eftir að sakna frændsystkina sinna alveg hrykalega.

En annars áttum við alveg yndislega stundir með börnunum þínum núna um helgina. Er ekkert smá ánægð með að hafa fengið að vera svona með þeim rétt áður en þið farið.

Ég styð það samt að þú haldir áfram að blogga þegar að þú kemur heim :)

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir að skrifa stelpur, á eftir að sakna ykkar ótrúlega mikið og trúi því ekki enn að ég sé að fara af landinu eftir 8 daga.

Það var æðislegt að krakkanir gátu verið hjá þér Sylvía, við eigum eftir að sakna ykkar ótrúlega, við verðum að reyna að ná að kíkja á Theodór í vöggustofunni, hlakka til að hitta ykkur á jólunum.

Heiðrún ég fæ tár í augun þegar ég hugsa til þess að þurfa að kveðja ykkur.

Ásta Laufey þið eruð velkomin í heimsókn til okkar áður en við förum og takk fyrir góðar stundir í Danmörkinni.

Kristrún við hlökkum til að hitta ykkur og koma í afmæli bráðum til strákana það verður fjör.

Aldrei að vita nema að ég skelli inn einhverri færslu eftir að við erum kominn heim en það væri gaman að fá mail frá ykkur á christel_gunnar@hotmail.com

Nafnlaus sagði...

Mikið verður nú gaman að fá ykkur aftur á skagann :)

Gangi ykkur vel að pakka og reynið að njóta síðustu dagana.


Hlökkum til að sjá ykkur!

Bestu kveðjur af Vallholtinu

Nafnlaus sagði...

Frábært að þið séuð að koma heim. Nú verðum við að fara að endurvekja saumó.
Kveðja
Halldóra