miðvikudagur, 24. október 2007

Tölvuveiki

Hvað er eiginlega í gangi með mig? á mánudagsmorgninum leið yfir mig þegar ég var á bloggrúnti á netinu, náði að öskra á Gunna til að láta hann vita, rétt náði að kasta tölvunni frá mér áður en ég lognaðist út af og á þriðjudagskvöldið sat ég í sófanum með tölvuna í fanginu og þá heyrist eitthvað klikk í vinstra hnénu og er ég nú haltrandi og læknarnir skilja ekkert hvað er að mér, er núna á sterkjum verkjatöflum við sársaukanum í hnénu.......kannski er ég bara með einhvern tölvusjúkdóm heheheh, nei annars er ég öll að koma til finnst bara frekar fyndið að það skuli líða yfir mig og fá svona næsta dag eitthvað í hnéð og geta næstum ekki gengið...ég held bara að ég láti tölvuna í friði hef ekki tíma í svona vesen.

Annars fengum við fullt af góðum fréttum í gær..............ohhh þetta er allt saman svo spennandi!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hlakka svo til þess að sjá þig. Bestu kv. Elsa Lára.

Nafnlaus sagði...

Þetta er ekki spennandi veiki sem þú hefur náð þér í mín kæra ( kannski er það ástæðan fyrir því hvað er langt á milli þess sem þú bloggar hehe. Vona að þú komist yfir það og haldir áfram að blogga frá klakanum góða eftir fluttninga.

En við erum laus eftir tvær vikur í heimsókn hvaða dagur hentar ykkur best. ?