2ja viknaSnúlla okkar er 2. ára í dag. Hún vaknaði í morgun kát og hress og vildi drífa sig í vuggestuen með bollurnar sem við bökuðum í gær og sá hún um að skreyta þær, setja glassúr og skraut ofaná og svo rúsínupakka handa krökkunum. Systkini hennar sungu afmælissönginn og fékk hún gjafir í morgun frá þeim. Seinna í dag koma vinir hennar í afmæli....rosa gaman og mikið stuð.
Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir tveimur árum síðan fæddist snúlla okkar, maður rifjar upp þennan dag og hlógum við hjónin í morgun þegar við rifjuðum upp fæðingarferlið, hefur einhver verið settur í gang fjórum sinnum? það hef ég prófað og ekkert gekk fyrr en ég var sett í gang í fimmta skiptið......þetta er bara fyndið svona eftirá.
Njótið dagsins í dag!!
6 ummæli:
Til hamingju med dømuna :) Jamm, timinn lidur hratt....eg var ad taka til i gømlum brefum i gær og aftan a einu brefinu stod ps. Christel er buin ad eignast stelpu. :) En thad var nu ekki Elvira...
kvedjur, ERla
He, he, hún Elvira hefur ekkert viljað láta aðra stjórna því hvenær hún kæmi í heiminn!! ;o)
Við hlökkum til að sjá ykkur á eftir í afmælinu!
*knús* frá Bøgehaven 17
Innilegar hamingjuóskir með 2. ára afmæli Elviru Öglu, kveðja og tölvuknús frá okkur öllum þ.e.a.s. Kristrúnu,Tedda,Ester Lind,Viktori og Marteini.
Til hamingju með Elviru í dag yndisleg myndin af henni svo prakkaraleg hlakka til að sjá ykkur knús Lóa.
Innilega til hamingju með snúlluna!
Takk fyrir kveðjurnar....
Erum tölvulaus núna helv...tölvan er biluð!!!
Skrifa ummæli