Ég á það stundum til að vera ótrúlega stressuð og stressa mig nánast á hlutum sem ég þarf ekki að stressa mig á og svo get ég verið ósköp róleg yfir einhverju sem ég ætti að vera stressuð yfir en annars held ég að ég sé nú frekar róleg manneskja. Nú eru ritgerðarskrif hjá mér og á ég að skila tveimur verkefnum í endan maí, verkefnin stressa mig og ég vakna upp á nóttinni og er að hugsa um verkefnin og er í rauninni ekki á jörðinni því ég er í lærdómsheiminum mínum. Ég hlakka mikið til þegar ég kemst aftur í fjölskylduheiminn og mitt eðlilega líf án þess að hugsa um kenningar allan daginn, reyndar er ég að lesa hrikalega skemmtilega bók sem ég ætla að nota í öðru verkefninu mínu sem fjallar um einstaklingsnámskrár. Í einu stresskastinu mínu í dag þá fékk ég blóðnasir sem ég hef ekki fengið í nokkur ár, var að keyra og allt í einu byrjaði að blæða úr nefinu á mér.
Annars gengur lífið sinn vanagang hér í Lystrup og allir sælir og glaðir. Á laugardaginn fór Hervar í indjánafest í SFO og skemmti sér konunglega. Margrét Saga stækkar og þroskast á hverjum degi og mikið að gerast andlega og líkamlega hjá stúlkunni. Litla skottið reynir að stjórna fjölskyldunni eins og henni er einni lagið og tekst það ágætlega og hefur hún greinilega erft sterka rödd því stúlkan getur gargað og öskrað eins og villt óperusöngkona en hvaðan ætli hún hafi þessa rödd það er stóra spurningin.....
2 ummæli:
Ánægð með þig stóra sys.. Þú ert svo svaðalega góður bloggari.
Á morgun eru þrjár vikur þanga til að við komum.. Spennó Spennó
Kossar og klessuknús frá Sylvíu
Það eru stundum svona tímar, þá er maður viðkvæmari gagnvart mótbyr en það styrkir mann bara. Það gengur yfir og á endanum gengur nú flest vel hjá manni ekki satt. Ein að reyna að vera jákvæð, það þýðir bara ekkert annað. Bestu kveðjur Helga Atlad
Skrifa ummæli