þriðjudagur, 22. maí 2007

Ég fann um daginn fullt af gömlum myndaalbúmum sem ég hafði ekki skoðað í mörg ár. Við erum búinn að sitja og skoða fjölskyldan albúmin núna undanfarna daga og hlægja yfir því hvað við hjónakornin höfum breyst mikið á undanförnum árum. Það er hægt að segja að við höfum elst ansi mikið og fitnað ansi ansi mikið. Það er greinilegt að við hjúin þurfum að fara í átak allaveganna ÉG. Með komandi sól og hlýnandi veðri er aldrei að vita nema að maður kaupi sér hlaupaskó og reyni að hreyfa á sig rassinn. Ég fékk fyrir löngu síðan sent hlaupaplan sem væri voða gott að fara eftir þegar maður væri að fara að byrja að hreyfa sig eftir langan tíma og hef ég lesið þetta blað fram og aftur með kók í annarri og súkkulaðistykki í hinni!!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert sko bara sætust Christel!

Það er spurning hvort að maður rífi sig upp á rassgatinu og hlaupi með þér;o)

Annars langar mig að koma því að hve Gunni er ótrúlega hæfileikaríkur og kreatívur maður. Hann semur og semur lög sem eru hvert öðru betra. Mér finnst ég mjög heppin að fá að vinna með honum!

Og Christel....þó þú sért ekki byrjuð að hlaupa, þá ertu ótrúlega dugleg að læra...ég er mjög stolt af þér!

Heiðrún

Nafnlaus sagði...

Hey ég skal vera hlaupafélaginn þinn, en þá er bannað að gera grín af lélegu formi hjá litlu systir.

Mamma situr hliðiná mér og hlær, ein sem hefur ekki trú á píjunum sínum :)

Nafnlaus sagði...

Sylvía það er nokkuð ljóst að ég er ábyggilega ekki í betra formi en þú, hlakka svo til að hitta þig eftir nokkra daga.

Já Heiðrún hann Gunni minn er bara bestur!!

Nafnlaus sagði...

Til lukku með að vera búin með ritgerðina elsku Christel!!

Heiðrún