Var að detta inn úr dyrunum nýkominn heim úr vinnunni. Húsið er tómt, er búinn að skella í eina þvottavél. Veðrið úti er yndislegt, sólin skín og það er hlýtt. Annars er farið að kólna svolítið hjá okkur og orðið kalt í húsinu á kvöldin þá er um að gera að kveikja á kertum og hafa kósý.
Snúllan mín litla er orðinn svo dugleg að tala og það eru ný og ný orð sem bætast við á hverjum degi og farinn að segja heilu setningarnar. Um helgina verður koppaþjálfun, er ekki viss um að henni finnist það sniðugt það er svo þægilegt að hafa bleyju... Stúlkan á 2. ára afmæli í næsta mánuði, tíminn er svo fljótur að líða, eiginlega bara allt of fljótur og maður sér að hún er svo mikið að stækka og þroskast, ég hef ótrúlega gaman að henni því hún er svo ákveðinn og vill fara sínar leiðir.
Hervar er alltaf spenntur fyrir fimmtudögunum og vill helst koma heim strax eftir skóla því í dag eru skátarnir. Ég er að spá í að búa til aukalykil handa honum að húsinu og þá getur hann komið heim úr skólanum þegar hann vill, hann er nú 8 ára. Ég fór einmitt að spá í því í gærkvöldi þegar hann talaði um það að honum langaði að fá sinn eigin lykil að ef við byggjum á Íslandi þá væri hann ábyggilega löngu kominn með lykil um hálsinn maður verður að passa sig að vernda ekki börnin of mikið.
Það er alltaf nóg að gera hjá Margréti, hún er í gítarkennslu og svo er hún í tveimur hollum í dansi og leikfimi, henni finnst gaman að hafa nóg að gera. Það var svo gaman að henni í gær þegar hún var að læra fyrir fermingarfræðsluna, þá sagði hún ,,ekki vissi ég að maður þyrfti að læra svona mikið og vita svona mikið um Guð og jesú áður en maður fermist,, Úffff hvað lífið getur stundum verið erfitt!!
Svona er lífið í Bögehaven 8
fimmtudagur, 13. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Alltaf eitthvað um að vera hjá stórum fjölskyldum hehe og um að gera að vera ákveðin ..... hvenær ertu búin að vinna svona norm...
Börn eru besta fólk.
Hilsen
Hæ Ásta, það er aldrei lognmolla hér á þessu heimili. Ég er yfirleitt kominn heim á milli 2-3 á daginn og stundum fyrr. Ætlarðu að kíja á mig....
Skrifa ummæli