mánudagur, 17. september 2007

Mikið er rætt í vinnunni að verðið sé að hækka í matvöruverslunum, mjólk og brauð hefur hækkað en við kókdrykkjufólkið erum búinn að taka eftir því að blessað kókið það lækkar.... Við finnum samt mun á því að það er dýrara að versla inn í matinn núna en fyrir 3 árum þegar við fluttum hingað en við vorum reyndar fjögur þá en fimm núna á heimili. Verðið á matvöru er samt mun lægra hér en heima en samt ekki allt (allaveganna er það þannig í minningunni, hvað segið þið um það þið sem búið á Íslandi?).

Nú er tími útgjalda, þá meina ég tími útifatnaðaútgjalda, tveimur yngstu meðlimunum vantar galla, úlpu, skó vantar á alla krakkana og svona mætti lengi telja.....mikið er nú gott að búa þá í Danmörkinni þar sem hægt er að kaupa allan þennan fatnað á góðum prís. Ef ykkur vantar að láta kaupa fyrir ykkur föt á góðu verði þá skulið þið ekki hika við að hringja kæru vinir og fjölskylda. Ég er nú nokkuð viss um að fatnaður sé ódýrari hér en heima er það ekki?

3 ummæli:

Erla sagði...

hæ christel.
erud thid buin ad vera i 3 ar? va hvad timinn er fljotur ad lida? erud thid a heimleid?
annars er eg akvedin i ad koma og kikja a ykkur næsta sumar, thad litur allt ut fyrir ad vid flyjum aftur til DK.
knus erla

Nafnlaus sagði...

Það er ýmislegt að hækka hér .... en það gerist heima líka.
Varðandi föt og þh. er ég mikið sammála þér þar er mikill munur á og auðvita blessuðum bjórnum (kannski er mesti munurinn á honum og kjúkl.) hehe.
Bið að heilsa í kotið.

Nafnlaus sagði...

Hæ Erla ég ætla að senda þér póst á netfangið þitt.

Já blessaður bjórinn hann er nánast ókeypis en það er rétt að það er margt að hækka hér, ég finn allaveganna mun á því hvað ég er að fá minna fyrir peninginn nú en bara fyrir nokkrum mánuðum.