mánudagur, 3. september 2007

Margrét Saga er byrjuð í gítarkennslu, nú spilar hún með pabba sínum og æfir sig þannig. Hún er líka að æfa dans, stúlkan er að verða ansi stór og við horfum á hana stækka og verða að fullorðinni manneskju. Þetta er ótrúlega furðuleg tilfinning að sjá barnið sitt verða að fullorðnum einstaklingi.

Oft kem ég drekkhlaðinn heim úr vinnunni með töskuna fulla af súkkulaði, gamla fólkið er yfirleitt yndislegt og finnst gaman að gefa mér gjafir (þó ég hafi nú ekki gott af öllu þessu súkkulaðiáti), fékk meira að segja hálsmen frá manni um daginn og var það hjartalaga með steinum í. Verst hvað mér finnst þessi vinna ekki vera fyrir mig. Sumir dagar eru góðir en aðrir eru mjög slæmir og ég er við það að gefast upp á þessu, ég dái fólk sem getur unnið við þetta en þetta er eitthvað sem verður ekki mitt framtíðarstarf en ég á eftir að sakna gamla fólksins.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þær eru heldur betur að stækka þessar stelpur okkar ..... ég er að upplifa það sama og þú hehe og það er svolítið skrýtið.
En ég efast ekki um að þú sért alveg súper góð í þessari vinnu þó hún eigi ekki endilega við þig þá er greinilegt að þú skilar henni vel frá þér.
KVeðja

Nafnlaus sagði...

Ég skal alveg trúa því að þetta eru viðbrigði fyrir þig að starfa við þetta. Held samt að það geri öllum gott, líka þeim sem finnst þetta ekki eiga við sig. Þú ert örugglega rosalega góð í þessari vinnu og fólkið á eftir að sakna þín.

Ertu búin að fá eitthvað annað....

Alltaf nóga vinnu að fá á Akranesi!!!

Kveðja í kotið,
Helga Atlad.