Í dag á litla systir mín afmæli, elsku Sylvía innilegar hamingjuóskir með daginn í dag. Við fengum þessar fínu kökur hjá henni í gær og enduðum daginn á að fara í bíó við mæðgur og afmælisbarnið. Fórum á myndina Knocked up, ægilega skemmtileg konu mynd.
Annars er yngsta dóttirinn með einhvern leiðinda hósta sem hrjáir hana töluvert á nóttunni, þannig að nú kúrir hún á milli foreldra sinna sem finnst það ekki leiðinlegt þar sem hún hefur alltaf viljað sofa í sínu rúmi.
Fermingarundirbúningurinn hjá Margréti Sögu er farin á fullt skrið, hún er búinn að fá danska bíblíu og heimaverkefni fyrir næsta tíma. Henni finnst þetta ótrúlega spennandi og hlakkar mikið til. Nú er komið að okkur foreldrunum að fara að hefja undirbúning fyrir stóra daginn.
mánudagur, 10. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Takk fyrir kveðjuna stóra sys.. og takk kærlega fyrir skemmtilegan dag í gær, geggjað gaman að komast út og fara í bíó.
Ja thu ert ad fara ad ferma - brjalad :) Mer finnst skrytid ad minn stori strakur fari i skola næsta haust :) ha ha. Gaman ad heyra i ther ødru hverju. Kvedja, Erla
Skrifa ummæli