Vinnuvikunni er lokið og er ég búinn að skrifa undir samning í vinnunni. Samningurinn hljómar samt þannig að ég get rift honum hvenær sem ég vil og þarf ekki að vinna upp uppsagnarfrestinn ef ég finn einhverja aðra vinnu sem mér finnst vera meira spennandi. Er á fullu að sækja um kennarastöður og vonast til að fá jákvæð svör. Mér líkar samt ágætlega þessi vinna sem ég er í og finnst mér virkilega gaman að hitta margt af þessu gamla fólki, verra er að launin eru ömurleg þetta er nánast eins og maður sé í sjálfboðavinnu. Kosturinn er þó að ég get hjólað í vinnuna og er ekkert háð bíl og er á fullu við að snakke dansk.
Gunni og Margrét keyrðu á vesturströndina í dag með Agli og börnum til að fara á tónleika, ætla að gista hjá Tedda og fjölskyldu og síðan koma þau öll hingað á morgun. Helgin hljómar upp á afmælisveislu og ferð í sommerland, gaman gaman.......
Góða helgi og farið varlega um verslunarmannahelgina.
föstudagur, 3. ágúst 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Það er nú gott að þú ert búin að skrifa undir samning, ertu þá búin í náminu núna? Er þetta umönnunarvinnan sem þér leist svo illa á í byrjun?
Það vill fylgja þessum kvennastörfum að launin séu léleg, verst fyrir þig að fá ekki vinnu við hæfi þarna úti.
Kær kveðja til ykkar og góða skemmtun,
Helga og fjölsk.
Sæl Helga
Þessi vinna er þannig að ég hjóla heim til fólks og hjálpa því við ýmislegt sem þau þurfa hjálp við. Í fyrstu leist mér ekkert á þetta því inn á milli er mikið um alkahólisma og heimilin þeirra og það sem þau þurfa hjálp við er oft mjög erfitt að horfa uppá.
Já það er rétt að kvennavinna er illa borguð.
Ég er ekki búinn að klára skólan ég ætla að taka eitt fag í skólanum en fullt nám eru tvö fög og vinna með og ég þarf þá ekki að taka námslán á meðan.
Gangi ykkur vel í byggingarvinnunni Helga mín, hlakka til að koma í nýja húsið ykkar.
Skrifa ummæli