þriðjudagur, 28. ágúst 2007

Árgangsmót

Það er árgangsmót á laugardaginn hjá árgangi 1976, ohhh mig langar svo ógeðslega mikið. Ég ætla að vera með ykkur í anda kæru jafnaldrar á Akranesi og fá mér einn bjór niðrí bæ á festugen um helgina.

Góða skemmtun (það er sko pottþétt að ég mæti eftir 5 ár)

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Tek undir með þér Christel ég er alveg veik mig langar svo að fara ... en við verðum að plana hitting fljótlega (ekki 1. sept.) en ég fæ mér einn öllara hérna megin með þér á laugardaginn.
(ef þú ert með gsm nr. mitt ertu til í að senda mér smart nr. þitt og gemsa aftur - það hvarf allt hjá mér um daginn.)

Nafnlaus sagði...

Við Elva erum pottþétt til í bjór niðri í bæ um helgina.... hún er nú líka úr árgangnum ykkar!!

Þið hefðuð nú alveg getað haldið svona mini-árgangsmót um helgina þið '76 Danmerkur-gellur;o)

Sjáumst á morgun,
Heiðrún

Nafnlaus sagði...

Öfund .....oohhh það er aldrei að vita.
Annars var ég að spá í því hvort við "76 sem erum bara nokkuð mörg hér í mörkinni gætum ekki reynt að finna stað og stund og hittast einn dag eða kvöldstund ????
Ásta - Christel - Elva - Hrefna -Valgerður - Ingibjörg ég held að Hallur og Hildigunnur séu einhverstaðar hérna líka og jafnvel flr. sem ég er að gleyma eða veit ekki um 'Eg er gjörsamleg veik ! Það gæti líka verið gaman að hafa makana með.... Hvað með þig mín kæra

Nafnlaus sagði...

Vá ekkert smá góð hugmynd hjá þér Ásta, ég veit að Gauti úr mínum bekk er hérna úti líka, hef hitt hann einu sinni þannig að við gætum vel haldið mini-árgangsmót, ég er sko alveg til í það.

Númerið á íslenska símanum er 496-0143

Ég er sko alltaf til í bjór og væri til í að drekka hann með ykkur Heiðrún, kemur þú ekki bara líka Ásta þú getur gist hér hjá mér!!

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir boðið Christel en það hentar ekki alveg þessa helgi en við verðum í bandi varðandi hitt dæmið og margt flr.

Nafnlaus sagði...

Láttu endilega heyra í þér Ásta. Við kíktum á festugen í gærkvöldi og var mikið drukkið, hlegið og spjallað þannig að úr varð mini, mini árgangsmót hjá mér og Elvu. Sit hér heima þvílíkt ryðguð eftir gærkvöldið....