sunnudagur, 12. ágúst 2007

Kim Larsen tónleikar í gær

Við hjónakornin skelltum okkur í gær á tónleika hjá meistara Kim Larsen. Geggjaðir tónleikar og frábært stuð og ekki skemmdi fyrir að bassaleikarinn var algjört súkkulaði og vá hvað munnurinn á Kim Larsen er hrikalega stór og tungan líka þetta er ótrúlegt ég vissi það áður að hann væri með stóran munn en vá kannski ekki alveg svona. Þetta eru með bestu tónleikum sem ég hef farið á, skemmtilegt að vera á svona útitónleikum í geggjuðu veðri.

Börnin voru í pössun á meðan hjá Sylvíu systir alveg eins og í gamla daga þegar hún var lítil stelpa þá var maður alltaf að hringja í hana og biðja hana um að passa Margréti og núna 10 árum seinna er hún enn að passa barnaskarann minn, takk Sylvía mín.

Farið var í sommerlandsferð í dag og var mikið gaman og mikið stuð, litla hjartað hún Margrét okkar fór í öll tækin, það er ótrúlegt í hennar tilfelli.......

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Tad er sko bara gaman ad passa yndislegu børnin tín, hlakka til ad passa tau um næstu helgi :) Tú átt alveg ørugglega eftir ad passa grallarann fyrir okkur einhvetíman brádum.

Tad var líka ædislega gaman ad vera med ykkur í sommerland og sérstaklega ad sjá elstu børnin sigrast á hrædslunni. Næst fæ ég kannski Elviru med mér ofaní laugina :) heheh hún er bara ædi

Nafnlaus sagði...

Kim Larsen klikkar ekki á því!!

Takk fyrir síðast! Það var rosalega gaman að kíkja aðeins á ykkur þó stutt hafi það verið. Vonum að það verði lengra næst ;)

Nafnlaus sagði...

Það er alltaf gaman að lifna svolítið við inná milli þess dags daglega þó að ég kvarti ekki yfir því en að gera eitthvað saman bara tvö er nauðsynlegt maður bara fattar það ekki fyrr en maður gerir það hehe.
Alltaf gott að eiga góða að ( er Sylvía flutt út ?)
Verðum í bandi við förum að droppa við hjá ykkur fljótlega.

Nafnlaus sagði...

Hæ stelpur¨!!

Það var virkilega gaman að hitta ykkur Jóhanna, það verður bara lengri heimsóknin næst.

Ég er óskaplega ánægð með að litla systir sé flutt hingað út, hún er svo ansi góð barnapía hehehe

Þið eruð alltaf velkominn í heimsókn Ásta Laufey.

Nafnlaus sagði...

Sæl, mig langaði bara að kasta smá kveðju á ykkur og þakka fyrir okkur. Það hefði nú verið gaman að komast á tónleikana með ykkur:)Héðan er allt gott að frétta. Sælan búin í bili. Teddi byrjaður að vinna og fríið klárast hjá mér í þessari viku. Ester Lind er í dekri hjá ömmu Ester í dag og hún hafði orð á því hvað það væri nú gaman ef hún og Margrét gætu báðar verið þar. Knús til ykkar allra frá okkur öllum.