miðvikudagur, 15. ágúst 2007

Í dag er stór dagur hér í Danmörku. Í dag er bannað að reykja inn á skemmtistöðum og veitingastöðum, mikið er ég ánægð, ég hlakka til að setjast niður á kaffihús án þess að fá reyk á mig. Ég man þegar ég var með Elviru pinkulitla niðrí bæ og settist niður og ætlaði að gefa henni og fá mér eitthvað að borða í leiðinni var oft erfitt að finna sæti þar sem maður gat verið laus við reyk það fer líka alltaf svolítið í taugarnar á mér þegar ég fer út að borða og fæ reyk yfir mig frá næsta borði á meðan ég borða......þetta er gleðidagur fyrir okkur sem reykja ekki. Það voru mótmæli í miðbænum í dag þar sem samankomnir voru reykingamenn og konur til að mótmæla þessu banni.

Annars byrjuðu krakkarnir í skólanum í dag, Hervar í 2.b og Margrét í 7.a. Mikil spenna var í gangi fyrir deginum en þeim líst vel á og voru hress og kát þegar þau komu heim.

Diskóþema hjá gámafélaginu á föstudaginn, ég fór og keypti mér geggjaða gullskó (hrikalega hallærislegir) í gær fyrir 49 krónur!! núna erum við hjónakornin á fullu að finna búninga á okkur.......eruð þið með hugmyndir???

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vona að þið hafið skemmt ykkur hjá gámafélaginu ..... og ég skil vel gleði þína varðandi reykingar á opinberum stöðum ( er ekki alveg sammála en kannski einhvern tíman ) híhí Gott að krakkarnir eru ánægðir í skólanum það er alltaf mikill léttir. Bið að heilsa þarf að hringja í þig fljjótlega ef ég finn nr. aftur. hehe