laugardagur, 28. júlí 2007

Hervar er 8 ára í dag


Hervar á afmæli í dag, hann er 8 ára gamall. Það er ótrúlegt að það séu kominn 8 ár síðan að strákurinn minn kom í heiminn. Hervar er afskaplega ljúfur og yndislegur drengur. Hann er hefur óskaplega stórt hjarta, hann er orkudrengur og þarf mikið af hreyfingu og finnst gaman að hlutum sem krefjast mikillar orku enda er hann strákur. Hann elskar að vera í hesthúsinu með afa sínum og vildi helst geta verið þar upp á hvern einasta dag. Hann er nýbúinn að vera á Íslandi að leika sér með ömmu og afa og átti hann yndislegar stundir með þeim og öðrum fjölskyldumeðlimum og var þvílíkt dekraður. Hann hefur gaman að því að skoða dýrabækur og veit margt um hinar og þessar slöngur og kongulær. Hann er algjört gull, gullið mitt!!


Við héldum upp á afmælið hans á fimmtudaginn og bauð hann krökkunum í hverfinu og svo var ekki leiðinlegt að hafa alla íslensku gestina hér hjá okkur. Núna er amma farin frá okkur og eigum við mikið eftir að sakna knúsana frá henni. Teddi og Kristrún og krakkarnir eru hérna hjá okkur og er rosa stuð hjá okkur, erum á leið í sumarhús í dag, mikið fjör og mikið gaman....


Góða helgi.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hjartns hamingjuóskir með daginn elsku Hervar okkar.

Góða ferð í sumarhúsið og góða skemmtun í dag og um helgina.

Knús í kotið,
Heiðrún, Bippi, Snorri og Hekla

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með daginn Hervar minn. Vona að þið eigið skemmtilegan dag.


Við sjáumst vonandi eftir viku!

Knús og kossar af Vallholtinu
Jóhanna,Ingþór,Bergþóra,Eyrún og Orri Bergmann

Nafnlaus sagði...

Til hamingju med drenginn,
kvedja úr Jörundarholti
Helga