Helv...... rigning alla daga hér í Danmörkinni, ég er alveg við það að gefast upp á þessu en sem betur fer er spáin fyrir næstu viku góð, þannig að á sunnudaginn ætlum við fjölskyldan að skreppa í sommerland. Við hjónkornin erum búinn að vera saman í sumarfríi þessa viku og erum búinn að þrá sól og strönd. Ég fer síðan að vinna á fullu aftur í næstu viku.
Hervar minn og mamma koma á þriðjudaginn með góða veðrið með sér í ferðatöskunni. Ohhhh ég hlakka svo til.
Erum búinn að kaupa okkur miða á Kim Larsen og Kjukken 11. ágúst hér í Aarhus, það eru enn til miðar ef einhver hefur áhuga (mamma lengir þú ekki bara ferðina eða kemur aftur???)
Annars er allt gott að frétta héðan og allir í stuði.
miðvikudagur, 11. júlí 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Sæl!
Ég vona nú svo sannarlega að það fari nú að hætta að rigna þarna hjá ykkur. Við lofum því að koma með sólina með okkur þann 25. júlí. Þangað til gætuð þið þurft að sýna smá þolinmæði :)
Hér er bara sól og blíða alla daga. Hvernig er með vikuna þegar við förum í sumarhúsið. Komist þið ekki örugglega eitthvað með okkur??? Hlökkum mikið til ferðarinnar, krakkarnir telja niður dagana. Knúsí, knús frá okkur.
Við erum ótrúlega spennt og Margrét telur niður dagana og hlakkar mikið til þess að hitta frænku sína. Jú við ætlum að vera vera í fríi allaveganna í nokkra daga og koma með ykkur í sumarhúsið. Ég hringi í ykkur í kvöld.
Ég vona svo innilega að góða veðrið fari að koma hjá okkur en það er þó ágætt að vita af því að þið séuð með góða veðrið enda eigið þið það skilið. Verst að þið komist ekki með okkur á Kim Larsen:(
gleymdi að segja það að síminn okkar er eitthvað bilaður þessi með íslenska númerið, við getum hringt en svo þegar þið svarið að þá heyri ég ekkert í ykkur, þið verðið þá eiginlega að hringja í okkur þá aftur.....það á að reyna að laga þetta næstu daga segja þeir hjá hive.is og eins gott fyrir þá því þetta er ömurlegt.
Skrifa ummæli